Sumarafleysing á heimili fyrir fatlað fólk – Steinahlíð

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 25.03.2025

Umsóknarfrestur til: 08.04.2025

Tengiliður: ingibjorgo@hafnarfjordur.is

Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öfluga starfsmenn til sumarafleysing á heimili fatlaðs fólks, staðsett í Steinahlíð. 

Fjölbreytt og spennandi starf þar sem unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar með áherslu á að þjónustunotendum líði sem best.

Starfshlutfall er 80-100% eða eftir samkomulagi og þarf viðkomandi að geta unnið morgun-, kvöld-, nætur og helgarvaktir.  

 Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Veita þjónustunotendum stuðning við athafnir daglegs lífs
  • Fylgja þjónustuáætlunum og verklagsreglum
  • Virkja þjónustunotendur til þátttöku í samfélaginu 
  • Hafa gaman í vinnunni og vera öðrum fyrirmynd
  • Almenn heimilisstörf
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Reynsla af sambærilegu starfi kostur
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði og samviskusemi
  • Íslenskukunnátta skilyrði
  • Þjónustulund og jákvæðni í starfi
  • Áhugi á málefnum fatlaðs fólks
  • Framtakssemi og samviskusemi
  • Sjálfstæð vinnubrögð og sveigjanleiki í starfi
  • Líkamleg geta til þess að sinna krefjandi verkefnum á vinnustað

Viðkomandi þarf að hafa náð 20 ára aldri og vera með hreint sakavottorð.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Ingibjörg Ólafsdóttir, Forstöðuþroskaþjálfi í síma: 565-5344, netfang: ingibjorgo@hafnarfjordur.is

Launakjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.

Umsóknarfrestur er til og með 08.04.2025 

Með umsókn þarf að fylgja greinargóð ferilskrá .

 

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Önnur störf