Sumarstarf á heimili fyrir fatlað fólk – Erluás
Sækja um starfUmsóknarfrestur frá: 13.03.2025
Umsóknarfrestur til: 27.03.2025
Tengiliður: Hrund Brynjólfsdóttir
Hafnarfjarðarbær óskar eftir metnaðarfullum og áhugasömum starfsmönnum til sumarafleysinga á heimili fatlaðs fólks. Unnið er eftir hugmyndafræðinni Þjónandi leiðsögn með áherslu á að íbúum líði vel í þægilegu og öruggu umhverfi heimilisins.
Spennandi og skemmtilegt starf, með fjölbreyttum verkefnum í vaktavinnu. Viðkomandi þarf að geta unnið helgar, morgun, kvöld og næturvaktir. Starfshlutfall er 80-100% eða eftir samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Veita íbúum stuðning við athafnir daglegs lífs
- Hafa gaman í vinnunni, vera öðrum fyrirmynd og sýna frumkvæði
- Fylgja þjónustuáætlunum og verklagsreglum
- Virkja íbúa til þátttöku í samfélaginu og tómstundum
- Almenn heimilisstörf
- Samskipti við ýmsa þjónustuaðila
- Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Reynsla af sambærilegum störfum æskileg
- Þjónustulund og jákvæðni í starfi
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku er nauðsynleg
- Framtakssemi og samviskusemi
- Sjálfstæð vinnubrögð og sveigjanleiki í starfi
- Íslenskukunnátta skilyrði
- Bílpróf
Æskilegt er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri og hreint sakavottorð er skilyrði.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Hrund Brynjólfsdóttir forstöðuþroskaþjálfi, í síma 664-5720, netfang: hrundb@hafnarfjordur.is
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.
Umsóknarfrestur er til og með 27.mars 2025
Með umsókn skal fylgja greinargóð ferilskrá.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.