Sumarstarf á heimili fyrir fatlað fólk- Smárahvammur

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 02.04.2025

Umsóknarfrestur til: 16.04.2025

Tengiliður: Inga Rakel Einarsdóttir

Hafnarfjarðarbær óskar eftir metnaðarfullum og áhugasömum starfsmanni til sumarafleysinga á heimili fatlaðs fólks í Smárahvammi. Um er að ræða 80-100% sumarstarf, fjölbreytt og spennandi, sem unnið er í vaktavinnu. Viðkomandi þarf því að vinna kvöld, nætur- og helgarvaktir. Í boði að byrja fyrir sumarið.

Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Veita þjónustunotendum stuðning við athafnir daglegs lífs
  • Fylgja eftir þjónustuáætlunum og verklagsreglum
  • Virkja þjónustunotendur til ýmissa tómstunda
  • Hafa gaman í vinnunni og vera öðrum fyrirmynd
  • Almenn heimilisstörf
  • Samskipti við ýmsa þjónustuaðila
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu

 Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Reynsla af sambærilegum störfum kostur
  • Áhugi á málefnum fatlaðs fólks
  • Íslenskukunnátta skilyrði
  • Þjónustulund og jákvæðni í starfi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði og samviskusemi

Skilyrði er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri og hafi hreint sakavottorð.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Inga Rakel Einarsdóttir, forstöðuþroskaþjálfi í síma: 555-0355/664-5729 netfang: ingae@hafnarfjordur.is

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Umsóknarfrestur er til og með 16. apríl 2025

Umsókn fylgi ferilskrá.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.

Önnur störf