Sumarstarf – Tómstund

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 18.03.2025

Umsóknarfrestur til: 01.04.2025

Tengiliður: Stella Björg Kristinsdóttir

Auglýst er eftir tómstundaleiðbeinendum til að sinna Tómstund. Um er að ræða 100% starf. Tómstund er fjölbreytt sumarnámskeið fyrir nemendur sem voru að ljúka 4.–7. bekk. Tómstund verður starfrækt í Skarðshlíðarskóla og Öldutúnsskóla og er starfstímabilið frá 2. júní – 9. júlí.

Helstu markmið Tómstundar eru að virkja börn í sumarfríinu, gefa þeim tækifæri á að hitta önnur börn, kynnast áhugaverðum viðfangsefnum og endurvekja gömul áhugamál. Tómstundaleiðbeinendur sjá um að skipuleggja starfið og halda fjölbreyttar smiðjur.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Tekur þátt í að skipuleggja og móta fjölbreytta dagskrá
  • Mikil samskipti og samvinna við börn
  • Skapa jákvætt andrúmsloft sem byggir á virðingu og lýðræðislegum vinnubrögðum
  • Stuðningur við frumkvæði barna og unglinga, tryggir öryggi þeirra og vellíðan
  • Vinnur að upplýsingaflæði til barna, foreldra og samstarfsaðila
  • Önnur verkefni sem yfirmaður felur starfsmanni og samkvæmt starfslýsingu tómstundaleiðbeinanda

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Reynsla af starfi með börnum og unglingum
  • Fjölbreytt áhugasvið sem nýtist í starfi félagsmiðstöðva er kostur
  • Íslenskukunnátta
  • Stundvísi, skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Almenn tölvukunnátta

Skilyrði er að viðkomandi geti framvísað hreinu sakavottorði fyrir ráðningu.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Stella Björg Kristinsdóttir, Fagstjóri frístundastarfs og forvarna (stellabjorg@hafnarfjordur.is)

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélagi Hafnarfjarðar.

Umsóknarfrestur er til og með 1. apríl 2025.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika.

Önnur störf