Sumarstarfsmaður í framkvæmda- og rekstrardeild

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 02.04.2025

Umsóknarfrestur til: 14.04.2025

Umhverfis- og skipulagssvið Hafnarfjarðarbæjar óska eftir að ráða sumarstarfsmann til að sjá um eftirlit og umsjón með verklegum framkvæmdum. Um er að ræða 100% sumarstarf. Starfið hentar vel þeim sem eru í verk- og tækninámi.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Eftirlit og umsjón með framkvæmdum í gatnaumhverfi, opnum svæðum og húsnæði
  • Umsjón og samskipti við verktaka, eftirlit með verktaka, gerð fundargerða, uppmæling verka og yfirferð reikninga
  • Aðstoð við úttektir verkefna
  • Aðstoð við mælingar
  • Almenn tölvuvinnsla
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Stúdentspróf
  • Starfsreynsla sem nýtist í stafi
  • Almenn tölvuþekking
  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum og þjónustulund

Laun eru samkvæmt kjarasamning Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.

Umsóknarfrestur er til og með 22. apríl n.k. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst og er ráðningartími út sumarið.

Nánari upplýsingar um starfið gefur Helga Stefánsdóttir forstöðumaður framkvæmda- og rekstrardeildar í síma 585-5600 eða í gegnum netfangið helgas@hafnarfjordur.is

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Önnur störf