Teymisstjóri í stuðningsþjónustu
Sækja um starfUmsóknarfrestur frá: 04.04.2025
Umsóknarfrestur til: 25.04.2025
Tengiliður: Elín Ósk Baldursdóttir
Fjölskyldu- og barnamálasvið Hafnarfjarðar óskar eftir að ráða teymisstjóra í stuðningsþjónustu. Starfshlutfall er 100% og vinnutími frá kl. 08.00 – 16.00. Um er að ræða framtíðarstarf. Kjörið tækifæri fyrir öfluga og áhugasama einstaklinga sem vilja taka þátt í þróun starfseminnar.
Stuðningsþjónustan ber ábyrgð á fjölbreyttri þjónustu við íbúa Hafnarfjarðar. Leitast er við að veita einstaklingsmiðaða þjónustu.
Helstu verkefni:
- Framkvæmd og eftirlit stuðningsþjónustunnar í umboði deildarstjóra
- Að setja upp áætlanir og skipuleggja dagleg verkefni starfsmanna í dagþjónustu auk kvölds og helgarþjónustu
- Aðstoðar starfsmenn með skráningu á þjónustutímum í þjónustukerfi og vinnustund.
- Samskipti við skjólstæðinga og starfsmenn
- Þverfagleg samvinna með ráðgjöfum/heimahjúkrun, sértækri heimaþjónustu og fleiri aðilum
- Samstarf við aðra starfsmenn stuðningsþjónustunnar
- Þjálfun nýrra starfsmanna
- Ýmis tölvuvinna
- Sér um gæðaeftirlit
- Sinnir innlitum til notenda, s.s. gengur í störf félagsliða og leysir af þegar þörf er á.
- Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Félagsliða/sjúkraliðapróf eða stúdentspróf
- Bílpróf og umráð yfir bíl
- Reynsla af starfi teymisstjóra í stuðningsþjónustu er æskileg
- Góð íslenskukunnátta
- Jákvæðni í starfi, þjónustulund og góð samskiptafærni
- Frumkvæði, skipulögð vinnubrögð og sjálfstæði í starfi
- Færni í helstu tölvuforritum
- Hreint sakavottorð
Umsækjendur þurfa að hafa náð 20 ára aldri
Umsóknarfrestur er til og með 25. apríl 2025
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Verkalýðsfélagsins Hlífar.
Nánari upplýsingar veitir Elín Ósk Baldursdóttir deildarstjóri þjónustu- og úrræða. elinob@hafnarfjordur.is eða í síma 585 5500.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.