Þjónustuver Hafnarfjarðarbæjar – Sumarstarf

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 01.04.2025

Umsóknarfrestur til: 15.04.2025

Tengiliður: Anna Bára Gunnarsdóttir

Býrð þú yfir ríkri þjónustulund, samskiptahæfni og frumkvæði ? 

Þjónustuver Hafnarfjarðarbæjar auglýsir eftir þjónustufulltrúa í sumarstarf. Starfið er  áhugavert og lifandi með fjölbreyttum verkefnum þar sem meðal annars reynir á samskiptahæfni, frumkvæði og ríka þjónustulund, um 100% starf er að ræða.

Þjónustuverið er staðsett á fyrstu hæð, Ráðhúss Hafnarfjarðar, Strandgötu 6 og þar starfa sex starfsmenn. 

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Þjónusta og upplýsingagjöf til íbúa, ferðamanna og starfsfólks
  • Almenn afgreiðsla og símsvörun
  • Móttaka, skráning og svörun erinda
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Stúdentspróf eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi
  • Mjög góð þjónustulund, samskipta- og samstarfshæfni
  • Frumkvæði, skipulag og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
  • Góð almenn tölvukunnátta

Nánari upplýsingar um starfið veitir Anna Bára Gunnarsdóttir deildarstjóri þjónustuvers í síma 585-5591 og á netfang: annabg@hafnarfjordur.is 

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðarbæjar. 

Umsóknarfrestur er til og með 15.4.2025. 

Umsókn fylgi ferilskrá.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

 

Önnur störf