Þroskaþjálfi- Engidalsskóli

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 24.03.2025

Umsóknarfrestur til: 07.04.2025

Tengiliður: Margrét Halldórsdóttir

Engidalsskóli óskar eftir að ráða þroskaþjálfa í 70% starf 

Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2025

Engidalsskóli var stofnaður árið 1978, skólinn var sameinaður Víðistaðaskóla fyrir um áratug en endurheimti sjálfstæði sitt aftur haustið 2020 og er mikið uppbyggingarstarf í gangi. Skólinn er lítill og notalegur, hann sækja nemendur í 1.-7. bekk.

Áhersla er lögð á fjölbreytta kennsluhætti, teymisvinnu og velferð og vellíðan nemenda og starfsmanna. Skólinn er heilsueflandi, flaggar Grænfána og er að taka fyrstu skrefin í leiðsagnarnámi. Skólinn starfar samkvæmt Uppeldi til ábyrgðar. Við leggjum mikla áherslu á lestranám og er lestur eina heimanám nemenda. Við skólann er einstaklega skemmtileg 

Leiðarljós skólans eru Ábyrgð – Virðing – Vellíðan

Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni www.engidalsskoli.is

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Vinna með nemendum með þroska- og hegðunarfrávik.
  • Gera áætlanir, sinna þjálfun, vinna með félagsfærni, aðlaga námsefni og námsaðstæður í samvinnu við fagfólk og foreldra.
  • Starfið felur í sér ábyrgð á velferð barna í samvinnu við foreldra og fagfólk.
  • Gerir einstaklingsáætlun/námsskrá fyir nemendur í samráði við aðila innan innan skólans og foreldra/forsjáraðila og aðra sem við á hverju sinni.
  • Vinnur eftir stefnu skólans og samþykktir Hafnarfjarðar.
  • Vinnur að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk.
  • Geta til að vinna undir álagi og aðlagast breyttum aðstæðum.

Menntunar og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun á svið þroskaþjálfunar og starfsleyfi til að vinna sem slíkur (starfsleyfi fylgi umsókn).
  • Reynsla og áhugi á að starfa með börnum og ungmennum.
  • Jákvæðni og vilji til að ná árangri í starfi.
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Stundvísi og samviskusemi.
  • Góð íslensku kunnátta

Gerð er krafa um hreint sakavottorð við ráðningu.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Margrét Halldórsdóttir skólastjóri, margreth@engidalsskoli.is

Umsóknarfrestur er til og með 7. apríl 2025 

Greinagóð ferilskrá fylgi umsókn.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Þroskaþjálfafélags Íslands.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.

Önnur störf