Tómstundaleiðbeinandi – Aldan – Öldutúnsskóli

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 03.04.2025

Umsóknarfrestur til: 17.04.2025

Tengiliður: Margrét Sverrisdóttir

Öldutúnsskóli auglýsir eftir Tómstundaleiðbeinanda í félagsmiðstöðina Ölduna

Við í Öldutúnsskóla auglýsum eftir drífandi og kraftmiklum tómstundaleiðbeinanda til starfa.

Í Öldutúnsskóla er lögð áhersla á skapandi og gefandi námsumhverfi þar sem allir aðilar leitast við að gera námið í senn áhugavert og skemmtilegt. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda og fjölbreytta kennsluhætti. Rík áherslu er lögð á teymisvinnu

Einkunnarorð skólans eru virðing, virkni og vellíðan og grundvallast starf skólans af þeim gildum. Skólinn vinnur samkvæmt hugmyndafræði SMT um jákvæða skólafærni og samkvæmt hugmyndafræði Olweusar gegn einelti og andfélagslegri hegðun. 

Í Öldutúnsskóla eru um 620 nemendur í 1. – 10. bekk.

Félagsmiðstöðin Aldan býr börnum og unglingum í 5. – 10. bekk vettvang fyrir fjölbreytt og skemmtilegt tómstundastarf í húsnæði skólans eftir að hefðbundnum skóla lýkur. Starfið er unnið á grunni unglingalýðræðis og í anda forvarna. Aldan er vettvangur fyrir opið félagsstarf, skipulagða dagskrá, hópastarf og ýmsa viðburði sem starfsfólk framkvæmir með unglingunum.

Starfið hentar vel fyrir skólafólk eða fyrir þá sem eru að leita sér að aukavinnu.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Tekur þátt í að skipuleggja og móta fjölbreytta dagskrá í samvinnu við stjórnendur, samstarfsmenn og nemendur
  • Mikil samskipti og samvinna við börn og unglinga
  • Skapa jákvætt andrúmsloft sem byggir á virðingu og lýðræðislegum vinnubrögðum
  • Stuðningur við frumkvæði barna og unglinga, tryggir öryggi þeirra og vellíðan
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu tómstundaleiðbeinanda

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Starfsþjálfun, námskeið og/eða nokkur starfsreynsla nægir til að öðlast þá þekkingu sem krafist er
  • Reynsla af sambærilegu starfi kostur
  • Stundvísi og skipulagshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Fjölbreytt áhugasvið sem nýtist í starfi félagsmiðstöðva
  • Almenn tölvukunnátta
  • Íslenskukunnátta

Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur.

Nánari upplýsingar um starfið veita Margrét Sverrisdóttir, skólastjóri, í síma 664-5894 eða í gegnum netfangið margret@oldutunsskoli.is og/eða Kristján Hans Óskarsson, deildarstjóri, í síma 664-5712 eða í gegnum netfangið kristjan.oskarsson@oldutunsskoli.is

Umsóknarfrestur er til 17. apríl 2025

Greinargóð ferilskrá fylgi umsókn.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Önnur störf

Starfsheiti Umsóknarfrestur Frestur
Skólastjóri – Öldutúnsskóli
Þroskaþjálfi- Engidalsskóli
Umsjónarkennari á yngsta stigi – Lækjarskóli
Kennari í sérdeild – Lækjarskóli
Umsjónarkennari á miðstig – Lækjarskóli
Þroskaþjálfi – Lækjarskóli
Heimilisfræðikennari – Engidalsskóli
Dönskukennari á unglingastigi – Lækjarskóli
Umsjónarkennari á yngsta stigi – Öldutúnsskóli
Íþróttakennari – Skarðshlíðarskóli
Skrifstofustjóri – Engidalsskóli
Umsjónarkennari á miðstigi – Öldutúnsskóli
List- og verkgreinakennarar – Víðistaðaskóli
Þroskaþjálfi – Víðistaðaskóli
Heimilisfræðikennari fyrir næsta skólaár – Skarðshlíðarskóli
Umsjónarkennari í miðdeild fyrir næsta skólár– Skarðshlíðarskóli
Umsjónarkennari í yngri deild fyrir næsta skólaár – Skarðshlíðarskóli
Umsjónarkennari á miðstigi – Hvaleyrarskóli
Umsjónarkennari á yngsta stigi– Hvaleyrarskóli
Umsjónarkennari á yngsta stigi fyrir næsta skólaár – Setbergsskóli
Náms- og starfsráðgjafi – Setbergsskóli
Umsjónarkennari á yngsta og miðstigi – Hraunvallaskóli
Umsjónarkennari á unglingastigi – Hraunvallaskóli
Umsjónarkennari á miðstig – Áslandsskóli
Myndmenntakennari fyrir mið- og unglingadeild – Hraunvallaskóli