Tómstundaleiðbeinandi í félagsmiðstöðina Skarðið – Skarðshlíðarskóli

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 07.01.2025

Umsóknarfrestur til: 21.01.2025

Tengiliður: Ingibjörg Magnúsdóttir

Félagsmiðstöðin Skarðið býr börnum og unglingum í 5. – 10. bekk vettvang fyrir fjölbreytt og skemmtilegt tómstundastarf í húsnæði Skarðshlíðarskóla eftir að hefðbundnum skóla lýkur. Starfið er unnið á grunni unglingalýðræðis og í anda forvarna. Skarðið er vettvangur fyrir opið félagsstarf, skipulagða dagskrá, hópastarf og ýmsa viðburði sem starfsfólk framkvæmir með unglingunum.

Um er að ræða ca. 25% starfshlutfall utan hefðbundins vinnutíma. Starfið hentar vel fyrir skólafólk eða fyrir þá sem eru að leita sér að aukavinnu.

Í Skarðshlíðarskóla eru áhugasamir nemendur, metnaðarfullt starfsfólk og öflugur foreldrahópur. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda, teymiskennslu, fjölbreytta kennsluhætti, SMT skólafærni og að allir nemendur nái góðum árangri í leik og starfi.

Gildi skólans eru samvinna, vinátta og þrautseigja.

Í skólanum eru nemendur frá 1. – 10.bekk. Þegar skólahverfið verður fullbyggt verða um 450 til 500 nemendur í 1. til 10.bekk. Skólahúsnæðið er glæsilegt og er skólinn vel tækjum búinn, með íþróttahús, útibú frá Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og fjögurra deilda leikskóli í samtengdu skólahúsnæði.

Nánari upplýsingar um skólann er að finna á heimasíðu skólans www.skardshlidarskoli.is

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Tekur þátt í að skipuleggja og móta fjölbreytta dagskrá.
  • Mikil samskipti og samvinna við börn og unglinga.
  • Skapa jákvætt andrúmsloft sem byggir á virðingu og lýðræðislegum vinnubrögðum.
  • Stuðningur við frumkvæði barna og unglinga, tryggir öryggi þeirra og vellíðan.
  • Leitast við að virkja sem flesta óháð getu eða þroska í fjölbreyttu verkefni og taka fullan þátt í þeim verkefnum og viðburðum sem eru skipulögð.
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Starfsþjálfun, námskeið og/eða nokkur starfsreynsla nægir til að öðlast þá þekkingu sem krafist er.
  • Mikill áhugi af starfi með börnum og unglingum.
  • Stundvísi og skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Lipurð í samskiptum sveigjanleiki og samstarfshæfni
  • Fjölbreytt áhugasvið sem nýtist í starfi félagsmiðstöðva.
  • Almenn tölvukunnátta.
  • Gott vald á íslensku        

 Skilyrði fyrir ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Fjóla Sigrún Sigurðardóttir, deildarstjóri tómstundamiðstöðvar, í gegnum netfangið fjolasig@skardshlidarskoli.is

Umsóknarfrestur er til og með 21.janúar

Greinargóð ferilskrá fylgi umsókn.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Önnur störf