Umsjónarkennari á yngsta og miðstigi – Hraunvallaskóli

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 04.04.2025

Umsóknarfrestur til: 18.04.2025

Tengiliður: gudbjorgn@hraunvallaskoli.is

Hraunvallaskóli auglýsir eftir kennurum til að sinna umsjónarkennslu á yngsta og/eða miðstigi skólaárið 2025-2026.

Starfshlutfall er 80-100% og gert er ráð fyrir að starfsmaður hefji störf 1. ágúst 2025.

Hraunvallaskóli hefur þá sérstöðu að innan veggja hans er rekinn bæði leik- og grunnskóli. Skólinn starfar eftir hugmyndafræði opna skólans og er byggingin hönnuð með það í huga. Í kennsluskipulagi er lögð áhersla á skipulag sem byggir á hópavinnu, þemanámi, einstaklingsvinnu, þrautalausnum, gagnrýnni hugsun og færni nemenda til að afla sér þekkingar og nýta sér nýjustu upplýsinga- og samskiptatækni í því skyni. Kennarar vinna saman í teymum í kennslustundum og við skipulagningu og undirbúning kennslunnar. Nemendur í sama árgangi eru í sameiginlegum umsjónarhópum með sameiginlega umsjónarkennara á sínum heimasvæðum. 

Dyggðir Hraunvallaskóla eru vinátta, samvinna og ábyrgð.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Annast almenna kennslu og faggreina kennslu á yngsta stigi í samráði samkennara, skólastjórnendur og foreldra
  • Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagfólk skólans
  • Vinnur að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
  • Vinnur eftir SMT skólafærni sem ætlað er að skapa gott andrúmsloft í skólum og tryggja öryggi og velferð nemenda og starfsfólks
  • Skýr skuldbinding gagnvart stefnu og áherslum skólans
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu (Leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Reynsla af kennslu yngri barna æskileg
  • Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
  • Stundvísi og samviskusemi

Gerð er krafa um hreint sakavottorð við ráðningu.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðbjörg Norðfjörð Elíasdóttir, skólastjóri, gudbjorgn@hraunvallaskoli.is og Guðbjörg Inga Guðmundsdóttir, aðstoðarskólastjóri, gudbjorgi@hraunvallaskoli.is eða í síma 590 2800.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.

Umsóknarfrestur er til 18. apríl 2025.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.

Önnur störf

Starfsheiti Umsóknarfrestur Frestur
Dönskukennari á unglingastigi – Lækjarskóli
Umsjónarkennari á yngsta stigi – Öldutúnsskóli
Íþróttakennari – Skarðshlíðarskóli
Skrifstofustjóri – Engidalsskóli
Umsjónarkennari á miðstigi – Öldutúnsskóli
Umsjónarkennari á yngsta stigi – Lækjarskóli
Kennari í sérdeild – Lækjarskóli
Umsjónarkennari á miðstig – Lækjarskóli
Þroskaþjálfi – Lækjarskóli
Heimilisfræðikennari – Engidalsskóli
List- og verkgreinakennarar – Víðistaðaskóli
Þroskaþjálfi – Víðistaðaskóli
Heimilisfræðikennari fyrir næsta skólaár – Skarðshlíðarskóli
Umsjónarkennari í miðdeild fyrir næsta skólár– Skarðshlíðarskóli
Umsjónarkennari í yngri deild fyrir næsta skólaár – Skarðshlíðarskóli
Umsjónarkennari á yngsta stigi– Hvaleyrarskóli
Umsjónarkennari á miðstigi – Hvaleyrarskóli
Náms- og starfsráðgjafi – Setbergsskóli
Umsjónarkennari á yngsta stigi fyrir næsta skólaár – Setbergsskóli
Umsjónarkennari á yngsta og miðstigi – Hraunvallaskóli
Umsjónarkennari á unglingastigi – Hraunvallaskóli
Umsjónarkennari á miðstig – Áslandsskóli
Myndmenntakennari fyrir mið- og unglingadeild – Hraunvallaskóli