Verkstjóri garðyrkju – Þjónustumiðstöð

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 26.01.2026

Umsóknarfrestur til: 02.02.2026

Tengiliður: hafsteinnv@hafnarfjordur.is

Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða verkstjóra í þjónustumiðstöð. Þjónustumiðstöð heyrir undir umhverfis- og skipulagssvið og er staðsett að Norðurhellu 2. Um er að ræða 100% stöðugildi.

Í þjónustumiðstöð Hafnarfjarðar eru 20 stöðugildi og starfa starfsmenn við mjög fjölbreytt viðhaldsverkefni á svæðum bæjarins sem og við stofnanir.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Verkstýrir tækjamönnum, öðru starfsfólki og verktökum sem við á, t.d. sumarstarfsmönnum. Ber ábyrgð á þeim verkefnum sem honum er falið hverju sinni
  • Viðhald, eftirlit, hönnun og umsjón með gróðri á opnum svæðum. Val á plöntum og ráðgjöf um gróður, jarðveg og umhirðu
  • Viðhald, eftirlit og umhirða á gróðri á opnum svæðum
  • Viðhald, viðgerðir og eftirlit á útibekkjum, borðum og bekkjum, flaggstöngum, fánaborgum, trjágrindum og uppbindingum o.fl.
  • Ýmis vinna vegna jólaskreytinga, hátíðarhalda, kosninga og ýmissa viðburða á vegum bæjarins 
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Sveinpróf í skrúðgarðyrkju/garðyrkju
  • Reynsla af sambærilegum störfum svo sem garðyrkju- og umhverfisstörfum 
  • Reynsla af stjórnunarstörfum kostur 
  • Reynsla af akstri stærri ökutækja og vinnuvéla
  • Líkamlega fær um að sinna þeim verkefnum sem starfið felur í sér og hæfni til að aðlagast breyttum aðstæðum
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í orði og riti
  • Aukin ökuréttindi á vörubifreið yfir 3.500 kg kostur.
  • Vinnuvélaréttindi á stærri tæki

Hafsteinn Viktorsson, forstöðumaður þjónustumiðstöðvar, í síma 585-5670 eða í gegnum tölvupóst: hafsteinnv@hafnarfjordur.is 

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Umsóknarfrestur er til og með 02.02.2026.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Önnur störf