Strætó býður pöntunarþjónustu að Hellnahrauni
Strætó býður pöntunarþjónustu frá Ásvallalaug að Hellnahrauni. Leið númer 26 þjónustar þetta vinsæla og vaxandi iðnaðarhverfi í Hafnarfirði.
Pantaðu farið með 30 mínútna fyrirvara
Strætó býður pöntunarþjónustu frá Ásvallalaug að Hellnahrauni. Leið númer 26 þjónustar þetta vinsæla og vaxandi iðnaðarhverfi í Hafnarfirði. Fjöldi fyrirtækja hefur verið að byggja upp starfsemi sína í hverfinu síðustu árin og því mikilvægt að komast leiðar sinnar.
Fyrirkomulagið er með þeim hætti að leigubílar annast aksturinn og panta þarf ferð með að minnsta kosti 30 mínútna fyrirvara fyrir áætlaða brottför. Það er gert með því að hringja í Hreyfil í síma 588-5522.
- Eingöngu er hægt að greiða fyrir ferðina um borð í leigubílnum með því að sýna Klapp kort, KLAPP tíu eða fargjald í Strætó appi eða Klapp appi.
Já, þessi strætóleið hefur upphafs- og endastöð við Ásvallalaug þar sem farþegar geta skipt í og úr leið 1 og 19.
| Biðstöð | Fyrsta ferð | 07:32–09:02 | 14:50–17:20 | Síðasta ferð |
|---|---|---|---|---|
| Ásvallalaug D | 07:02 | 32 / 02 | 50 / 20 | 17:50 |
| Berghella | 07:06 | 36 / 06 | 54 / 24 | 17:54 |
| Gjáhella | 07:07 | 37 / 07 | 55 / 25 | 17:55 |
| Breiðhella | 07:08 | 38 / 08 | 56 / 26 | 17:56 |
| Koparhella | 07:10 | 40 / 10 | 58 / 28 | 17:58 |
| Tinhella | 07:11 | 41 / 11 | 59 / 29 | 17:59 |
| Álfhella | 07:13 | 43 / 13 | 01 / 31 | 18:01 |
| Dofrahella | 07:14 | 44 / 14 | 02 / 32 | 18:02 |
| Ásvallalaug D | 07:19 | 49 / 19 | 07 / 37 | 18:07 |