Vegaframkvæmdir – Strandgata
Malbikun á Strandgötu undir Reykjanesbraut. Framkvæmdirnar munu standa yfir frá kl.8:30 til kl.18:00 föstudaginn 6. nóvember.
„Vegagerðin hefur gefið heimild til eftirtalinna verka ef veður leyfir föstudaginn 6. nóvember.
Malbikun á Strandgötu undir Reykjanesbraut. Framkvæmdirnar munu standa yfir frá kl.8:30 til kl.18:00 föstudaginn 6. nóvember.
Strandgötu verður lokað á milli Ásbrautar og Hvammabrautar á meðan framkvæmdum stendur. Upplýsingaskilti og lokun verða sett up skv. meðfylgjandi lokunarplani.
Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.“