Styrkir til hljóðvistar 2024

Tilkynningar

Hafnarfjarðarbær auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna aðgerða á gluggum húsa við umferðarþungar götur. Styrkir eru veittir til endurbóta á hljóðeinangrun glugga á þeim hliðum húss þar sem hljóðstig reiknast 65 dB(A) eða hærra. Umsóknarfrestur er til 19. apríl 2024.

Umsóknarfrestur er til 19. apríl 2024

Hafnarfjarðarbær auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna aðgerða á gluggum húsa við umferðarþungar götur. Styrkir eru veittir til endurbóta á hljóðeinangrun glugga á þeim hliðum húss þar sem hljóðstig reiknast 65 dB(A) eða hærra. Við úthlutun styrkja hafa þeir forgang sem búa við verstar aðstæður. Umsækjendur skulu í umsókn sinni greina frá fyrirhuguð aðgerðum og metur umhverfis- og skipulagsþjónusta hvort þær eru fullnægjandi en það er forsenda styrkveitingar.

Frekari upplýsingar fást hjá þjónustuveri Hafnarfjarðarbæjar í gegnum netfangið: hafnarfjordur@hafnarfjordur.is, netspjall á vef bæjarins (neðst í hægra horni), í síma 585-5500 eða með heimsókn í þjónustuverið að Strandgötu 6.

Ábendingagátt