Tækniskólinn hverfur frá Flensborgarhöfn og leitar nýrra miða
Tafir á afhendingu lóðar til Tækniskólans veldur því að skólinn leitar nú nýrrar utan Hafnarfjarðar. Hafnarfjarðarbær óskar þeim velferðar á leið sinni að nýjum glæsilegum skóla.
Saman með Tækniskólanum
Hafnarfjarðarbær og Tækniskólinn hafa undanfarin ár unnið að framtíðaruppbyggingu skólans við Flensborgarhöfn í Hafnarfirði í samræmi við samkomulag við ríkið.
Nú liggur fyrir að Hafnarfjarðarbæ mun ekki takast að afhenda Tækniskólanum lóðina sem fyrirhuguð er undir skólann innan þeirra tímamarka sem skólinn hefur sett varðandi upphaf framkvæmda við skólann. Óvíst er hvenær af því getur orðið. Undirbúningur og hönnun nýbyggingarinnar hefur því þegar tafist.
„Hafnarfjarðarbær og Tækniskólinn eru sammála um að ekki sé svigrúm til frekari tafa á verkefninu. Tækniskólinn og aðrir hagaðilar verkefnisins munu því nú kanna aðra möguleika á framtíðarstaðsetningu skólans á höfuðborgarsvæðinu,“ segir í sameiginlegri yfirlýsingu bæjarins og skólans vegna málsins.
„Hafnarfjarðarbær og Tækniskólinn leggja áfram áherslu á gott samstarf og að næstu skref verði tekin með faglegum og farsælum hætti. Nánari upplýsingar verða veittar eftir því sem þeirri vinnu miðar áfram,“ segir jafnframt í sameiginlegu yfirlýsingunni.
Áform um að reisa framtíðarhúsnæði Tækniskólans við Suðurhöfnina í Hafnarfirði voru fyrst kynnt í júlí 2021. Þá undirrituðu fulltrúar stjórnvalda, Hafnarfjarðarbæjar og Tækniskólans viljayfirlýsingu um verkefnið.
Nýr Tækniskóli á að sameina starfsemi skólans, sem dreifist á fjölmargar byggingar á höfuðborgarsvæðinu, undir einu þaki í nútímalegu húsnæði. Fyrirhugað var að skólinn á Flensborgarhöfn yrði um 30 þúsund fermetrar og gæti rúmað um þrjú þúsund nemendur.
Stjórnvöld, Hafnarfjarðarbær og Tækniskólinn undirrituðu í júní 2024 samkomulag um byggingu skólans. Gert var ráð fyrir að framkvæmdin yrði í tveimur áföngum og að verklok yrðu haustið 2029.
Margir lóðarhafar og fasteignir standa á staðnum þar sem Tækniskólinn átti að rísa. Lengri tíma en áætlað var tók að ná samkomulagi um flutning þeirra. Tækniskólinn og aðrir hagaðilar munu því kanna aðra möguleika á staðsetningu skólans á höfuðborgarsvæðinu.
Hafnarfjarðarbær skilur mikilvægi þess að Tækniskólinn rísi eins hratt og kostur er og óskar þeim velferðar á leið sinni að nýjum glæsilegum skóla.