Þér er boðið á lokahóf Skapandi sumarstarfa 2025

Fréttir

Í samstarfi við Hafnarfjarðarbæ og Vinnuskóla Hafnarfjarðar býður Nýsköpunarsetrið ykkur hjartanlega velkomin á lokahóf Skapandi Sumarstarfa þriðjudaginn 29. júlí milli kl.15-18.

Ungmennin sýna afrakstur sumarsins

Í sumar hefur hópur ungmenna starfað við fjölbreytt skapandi verkefni og þann 29. júlí bjóða þau íbúum Hafnarfjarðar og öllum áhugasömum að koma, hitta ungmennin og sjá verkefnin saman í einu rými. Milli kl. 15:00 og 18:00 verður sérstök dagskrá þar sem ungmennin sýna afrakstur sumarsins:
  • kl. 15:00 Opnunarorð. Umsjónarmaður Skapandi Sumarstarfa, Þorbjörg Signý Ágústsson, býður gesti velkomna.

  • Kl. 15:10 Ómstaður, flutt af Unu og Kristjonas. Una mist og Kristijonas Groblys flytja tónverk fyrir gesti með handgerðum hljóðfærum. Eftir dagskrá finnast þau í Ritsmiðjunni með annan flutning, gestum býðst að skoða hljóðfærin, hlusta á tónlistina og spjalla við listamennina.

  • kl. 15:20 Ljóðalestur með Iðu Ósk. Iða Ósk les nokkur ljóð fyrir gestum úr ljóðabókinni sinni. Gestum gefst færi á að skoða verkefnið og bókina betur að lokinni dagskrá.

  • kl. 15:30 Tilfinningar, kynning á verkefni Mirru Hjartardóttur. Mirra verður með stutta kynningu en býður svo börnum og foreldrum að koma til hennar kl. 16 í Tilraunasmiðjuna til að prófa spilið stuttlega áður en hún heldur utan um málunarstund á sömu forsendum og spilið sjálft.

  • kl. 15:40 Upplestur úr bók með Smára Hannessyni. Smári les upp úr bókinni sinni Eldar. Gestum gefast færi á skoða fyrstu drög af bókinni og skrá sig á forsölulista að lokinni dagskrá.

  • kl. 16:00 Fiðluleikur með Tómasi Vigur. Tómas slær á létta strengi og lýkur dagskránni með nokkrum vel völdum lögum.
  • Frá kl. 16-18 býðst gestum að rölta á milli bása og herbergja. Þátttakendur Skapandi sumarstarfa taka á móti gestum og spjalla við gesti um afrek sumarsins, verkefnin þeirra og sýna áhugasömum afrakstur undanfarinna mánaða.

Viðburðurinn er opin öllum og við hvetjum Hafnfirðinga og góða gesti til að mæta, styðja ungt fólk í sköpun og njóta þess sem verður á boðstólnum. Fleiri skapandi verkefni sumarsins verða kynnt nánar í komandi viku, meðal þeirra má nefna Rán, Írisi, Hönnu og Birtu.

Komdu og fagnaðu afrakstri þessa listræna, fræðandi og kraftmikila sumars með okkur!

Ábendingagátt