Leikskólar
Leikskólinn er fyrsta skólastigið. Þar er hlúð að börnum með skapandi og hvetjandi starfi.
Flutningur milli leikskóla
Sækja um flutningFlutningur innan bæjarins
Þú sækir um flutning milli leikskóla í Hafnarfirði í Völu. Umsóknir verða að berast fyrir 1. febrúar á hverju ári. Flutningsbeiðnir eru afgreiddar áður en aðalinnritun fer fram.
Aðlögun í nýjan leikskóla á sér stað eftir aðstæðum í hverjum leikskóla fyrir sig, algengast er að þær fari fram eftir sumarlokun leikskóla.
Flutningur á milli sveitarfélaga
Það er ætlast til að leikskólabörn séu í leikskóla í sveitarfélaginu þar sem þau eiga lögheimili. Börn sem flytjast á milli sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu geta dvalið áfram í gamla leikskólanum í allt að 6 mánuði frá flutningi lögheimilis ef þau eru á biðlista eftir leikskóla í nýja sveitarfélaginu. Búast má við að leikskóladvöl hefjist þar innan 6 til 12 mánaða.
Sótt er um framlengingu á leikskóladvöl í gegnum Mínar síður. Samþykki sveitarfélags sem flutt er úr þarf að liggja fyrir.
Börn sem flytjast til Hafnarfjarðar fyrir innritunaraldur í Hafnarfirði og eru í leikskóla eða ungbarnaleikskóla í öðru sveitarfélagi fá niðurgreiðslu sem nemur niðurgreiðslu dagforeldris þar til innritunaraldri er náð.