Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Hér er að finna upplýsingar um úrræði fyrir börn og fjölskyldur á vegum Hafnarfjarðarbæjar
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Markmið barnaverndar er fyrst og fremst að koma börnum og fjölskyldum til aðstoðar.
Í barnaverndarlögunum segir að aðstoða eigi börn sem búa við óviðunandi aðstæður eða börn sem stofna heilsu sinni og þroska í hættu. Barnavernd Hafnarfjarðar gerir það með því að styrkja fjölskyldur í uppeldishlutverki sínu og vernda einstaka börn þegar það á við.
Það er lögð áhersla á samvinnu við foreldra og börn. Velferð barnsins er alltaf í forgangi. Börn eru höfð í samráði, eftir því sem aldur þeirra og þroski leyfir.
Verkefni barnaverndar eru:
Barnavernd sinnir ekki málum um umgengni eða forsjárdeilur. Það er gert hjá sýslumanni.
Ef þú heldur að barn sé beitt ofbeldi eða búi við vanrækslu ættirðu að láta barnavernd vita. Allir einstaklingar undir 18 ára teljast börn, einnig ófædd börn.
Tilkynning til barnaverndarnefndar er ekki kæra heldur beiðni um aðstoð fyrir viðkomandi barn eða fjölskyldu sem tilkynnandi telur að sé hjálparþurfi. Best er að tilkynna rafrænt til barnaverndar Hafnarfjarðar en einnig er hægt að hringja í símavakt barnaverndar í síma 585 5500 frá 13–16 alla virka daga, nema föstudaga til 14.
Í bráðatilfellum á skrifstofutíma er best að hringja í neyðarvakt barnaverndar í síma 585 5500. Utan skrifstofutíma á að hafa samband við 112 í síma eða gegnum netspjall.
Þú þarft að segja til nafns þegar þú tilkynnir en getur alltaf óskað eftir nafnleynd gagnvart öðrum en barnavernd. Börn geta líka haft samband sjálf.
Það er allt í lagi að tilkynna þótt maður sé ekki alveg viss. Börn eiga alltaf að njóta vafans.
Þegar tilkynning berst tekur starfsfólk barnaverndar afstöðu til þess hvort málið verði kannað frekar. Sú ákvörðun byggir á upplýsingum sem tilkynnandi veitir og fyrri afskiptum barnaverndar.
Foreldrar eru alltaf látnir vita að tilkynning hafi borist og hvaða ákvörðun hafi verið tekin um aðkomu barnaverndar. Í vissum aðstæðum má tala við barnið án þess að láta foreldra vita fyrst, til dæmis þegar grunur er um ofbeldi af hálfu foreldra.
Ef barnavernd telur þörf á að kanna málið frekar er aflað upplýsinga um aðstæður fjölskyldunnar frá foreldrum og aðilum úr nærumhverfi.
Könnun máls getur endað á tvo vegu:
Til að vernda trúnað þess sem er tilkynntur fær tilkynnandi ekki upplýsingar um næstu skref máls.
Á vef Neyðarlínunnar má finna ýmsar upplýsingar um velferð barna, ofbeldi gegn börnum og fræðsluefni fyrir börn og unglinga.
Ýmis úrræði eru til staðar til að aðstoða þegar vandamál koma upp. Þau má finna bæði á úrræðasíðu 112.is og með úrræðaleitarvélinni Eitt líf. Einnig má kynna sér ýmis úrræði á vegum Hafnarfjarðar sem hluti af velferðarlögum barna.
Allar fyrirspurnir eru velkomnar á netfangið barnavernd@hafnarfjordur.is.
Var efnið hjálplegt?