Umferðarhraði lækkaður á götum Hafnarfjarðar
Umferðarhraði á yfir sextíu götum Hafnarfjarðarbæjar lækkar úr 50 km/klst í 40 eða 30 þann 22. maí. Ákvörðunin er tekin af með það fyrir augum auka öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda — fækka slysum.
Fjölbreyttari umferð kallar á meiri aðgát
Umferðarhraði á yfir sextíu götum Hafnarfjarðarbæjar lækkar úr 50 km/klst í 40 eða 30 þann 22. maí. Ákvörðunin er tekin af með það fyrir augum auka öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda sem fjölgar jafnt og þétt með breyttum lífsstíl.
Breytingin á að draga úr umferðarslysum, loftmengun og stuðla að betri bæjarbrag. Bærinn fylgir í fótspor nágrannasveitarfélaganna sem einnig hafa lækkað umferðarhraða. Ákvörðunin, sem tekin er á umhverfis- og skipulagssviði Hafnarfjarðarbæjar, hefur verið samþykkt af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu og staðfest af bæjarstjórn Hafnarfjarðar.

Lægri hraði = Færri slys
Áhrif ákvörðunarinnar voru skoðuð í þaula áður en hún var tekin. Vinna við mat og undirbúning hefur staðið í um tvö ár. Í úttekt sérfræðinga um þróun slysa í Hafnarfirði kemur fram að við að lækka hámarkshraða úr 50 í 30 má fækka slysum um 25%. Fækka má slysum um 11% við að lækka hraðann úr 50 í 40 km/klst.
Nú eftir helgi verða umferðaskilti í bænum uppfærð. Vinnan hefst á þriðjudag og tekur nokkra daga.
Já, nú er að horfa í kringum sig og á skiltin en vera ekki úti að aka af gömlum vana!
| Breyting á hámarkshraða í Hafnarfirði: | ||||||
| Gata | Hámarkshraði fyrir breytingar (km/klst) | Hámarkshraði eftir breytingar (km/klst) | Frá | Til | ||
| Drangagata | 50 | 30 | Öll gatan | |||
| Klettagata | 50 | 30 | Öll gatan | |||
| Garðavegur | 50 | 40 | Í Hafnarfirði | |||
| Hlíðarberg | 50 | 40 | Setbergstorg- í átt að Staðarberg | Burknaberg | ||
| Hlíðarþúfur | 50 | 30 | Innan Hesthúsahverfis | |||
| Hvaleyrarvatnsvegur | 50 | 40 | Klukkutorg | Kaldárselsvegur | ||
| Hvammabraut | 50 | 40 | Strandgata | Öldutorgi | ||
| Öldugata | 50 | 40 | Öldutorg | Kaldárselsvegur | ||
| Kaldárselsvegur | 50 | 40 | Elliðavatnsveg | Kaldárseli | ||
| Kaldárselsvegur – eldri | 50 | 40 | öll gatan | |||
| Linnetsstígur | 50 | 30 | Fjarðargata | Strandgata | ||
| Lækjargata | 50 | 40 | Hringbraut | Fjarðargata | ||
| Reykjavíkurvegur | 50 | 40 | Flatahraun | Bæjartorg | ||
| Skógrækt | 50 | 40 | Öll gatan | |||
| Sléttuhlíð | 50 | 40 | Öll gatan | |||
| Staðarberg | 50 | 30 | Öll gatan | |||
| Strandgata /Víkingastræti | 50 | 40 | Hafnafjarðarkirkja | Fjaran | ||
| Sumarhús í Sléttuhlíð sem og upp með Kaldárselsvegi | 50 | 40 | Öll gatan | |||
| Vegur að skátaskála | 50 | 40 | Öll gatan | |||
| Vegur um Kjóadal, Seldal | 50 | 40 | Öll gatan | |||
| Ásbraut | 50 | 40 | Álftaás | Kaldártorg | ||
| Ásbraut | 50 | 40 | Ásvallabraut | Ástorg | ||
| Ásvallabraut | 50 | 40 | Krýsuvíkurvegur | Aftantorg | ||
| Brekkutröð | 50 | 40 | Öll gatan | |||
| Byggðabraut | 50 | 40 | Suðurbraut | Hamrabyggð | ||
| Bæjarhraun | 50 | 40 | Öll gatan | |||
| Dalshraun | 50 | 40 | Öll gatan | |||
| Drangahraun | 50 | 40 | Öll gatan | |||
| Elliðavatnsvegur | 50 | 40 | Öll gatan | |||
| Eyrartröð | 50 | 40 | Öll gatan | |||
| Fjarðargata | 50 | 40 | Öll gatan | |||
| Flatahraun | 50 | 40 | Öll gatan | |||
| Flókagata | 50 | 40 | Öll gatan | |||
| Flugvellir | 50 | 40 | Öll gatan | |||
| Grandatröð | 50 | 40 | Öll gatan | |||
| Hamranes | 50 | 40 | Öll gatan | |||
| Helluhraun | 50 | 40 | Öll gatan | |||
| Herjólfsbraut | 50 | 40 | Í Hafnarfirði | |||
| Herjólfsgata | 50 | 40 | Öll gatan | |||
| Hjallabraut | 50 | 40 | Öll gatan | |||
| Hjallahraun | 50 | 40 | Öll gatan | |||
| Hólshraun | 50 | 40 | Öll gatan | |||
| Hraunhella | 50 | 40 | Krýsuvíkurvegur | Hellnatorg | ||
| Hvaleyrarbraut | 50 | 40 | Öll gatan | |||
| Hvaleyrarvatnsvegur | 50 | 40 | Klukkutorg | Flugvöllur Þyts | ||
| Kaplahraun | 50 | 40 | Öll gatan | |||
| Klettahlíð | 50 | 40 | Kaldárselsvegur | Furuhlíð | ||
| Ljósatröð | 50 | 40 | Öll gatan | |||
| Lækjargata | 50 | 40 | Reykjanesbraut | Hringbraut | ||
| Melabraut | 50 | 40 | Öll gatan | |||
| Miðhella | 50 | 40 | Öll gatan | |||
| Miklaholt | 50 | 40 | Öll gatan | |||
| Norðurhella | 50 | 40 | Öll gatan | |||
| Reykjavíkurvegur | 50 | 40 | Stakkahraun | Flatahraun | ||
| Selhella | 50 | 40 | Öll gatan | |||
| Skútahraun | 50 | 40 | Öll gatan | |||
| Stakkahraun | 50 | 40 | Öll gatan | |||
| Stapahraun | 50 | 40 | Öll gatan | |||
| Strandgata | 50 | 40 | Flensborgartorg | Fjarðartorg | ||
| Suðurbraut | 50 | 40 | Strandgata | Lyngbarð | ||
| Suðurbraut | 50 | 40 | Suðurholt | Byggðabraut | ||
| Suðurhella | 50 | 40 | Öll gatan | |||
| Trönuhraun | 50 | 40 | Öll gatan | |||