Vegaframkvæmdir – Reykjanesbraut
Vegna vegaframkvæmda verður Reykjanesbraut (í norðurátt á milli Kaplakrika og Kauptúns) lokuð 27. og 28.september milli kl.20:00-07:00.
Vegagerðin hefur gefið heimild til eftirtalinna verka ef veður leyfir sunnudagskvöldið 27. september og mánudagskvöldið 28. september.
• Malbikun og fræsing á Reykjanesbraut í norðurátt á milli Kaplakrika og Kauptúns. Framkvæmdirnar munu standa frá 20:00 til 07:00 báða dagana. Reykjanesbraut verður lokuð á milli Kaplakrika og Kauptúns á meðan framkvæmdum stendur. Upplýsingaskilti og lokun verða sett up skv. meðfylgjandi lokunarplani.
Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum. Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin.