Vetrarfrí í Hafnarfirði – hugmyndir að góðri skemmtun
Vetrarfrí er í grunnskólum og Tónlistarskóla Hafnarfjarðar fimmtudaginn 23. febrúar og föstudaginn 24. febrúar. Af því tilefni er m.a. frítt í sund fyrir börn og fullorðna þessa tvo daga auk þess sem söfn bæjarins bjóða upp á skemmtilega dagskrá.
Sund, ratleikur, dans, listasmiðjur og fleira skemmtilegt!
Vetrarfrí er í grunnskólum og Tónlistarskóla Hafnarfjarðar fimmtudaginn 23. febrúar og föstudaginn 24. febrúar. Af því tilefni er m.a. frítt í sund fyrir börn og fullorðna þessa tvo daga í Ásvallalaug, Suðurbæjarlaug og Sundhöll Hafnarfjarðar. Heilsubærinn Hafnarfjörður býður börnum og fjölskyldum þeirra að taka þátt í skemmtilegri dagskrá í vetrarfríinu og finna má góðar hugmyndir að skemmtilegri og fjölbreyttri afþreyingu um allan Hafnarfjörð fyrir alla fjölskylduna á vef bæjarins.
Bókasafn, Byggðasafn og Hafnarborg taka fagnandi á móti fjölskyldum í vetrarfríi
Grunnskólabörn eru boðin velkomin í Bókasafn Hafnarfjarðar í vetrarfríinu, en þar verður meðal annars spilaðir tölvuleikir með sýndarveruleikagleraugum. Byggðasafn Hafnarfjarðar verður með sérstaka opnun í vetrarfríinu og hægt verður að taka þátt í ratleik fyrir fjölskylduna sem leiðir gesti um safnið og boðið verður upp á barnaleiðsögn á föstudeginum. Þá býður Hafnarborg grunnskólabörnum að koma og taka þátt í skemmtilegum og skapandi listasmiðjum. Smiðjurnar verða hvor með sínu sniðinu, svo velkomið er að taka þátt annan eða báða dagana.
Fimmtudagur 23. febrúar
- FRÍTT Í SUND frá kl. 6:30-22 í Ásvallalaug og Suðurbæjarlaug og í Sundhöllinni til kl. 21
- Ratleikur fyrir börnin og áhugaverðar sýningar á Byggðasafni Hafnarfjarðar. Opið kl. 11-15
- Skúlptúrsmiðja í Hafnarborg kl. 13-15. Unnið verður með gifs til þess að búa til skúlptúra í anda listakonunnar Sóleyjar Eiríksdóttur en um þessar mundir stendur yfir sýning á verkum hennar í safninu. Sóley sjálf vann stærri skúlptúra sína með því að klæða burðargrind með steinsteypu en þar kemur gifsið inn að þessu sinni. Leiðbeinandi er Unnur Mjöll S. Leifsdóttir, myndlistarmaður og sérfræðingur á skrifstofu Hafnarborgar.
- VR-spilun í Bókasafni Hafnarfjarðar kl. 15
- Brettafélag Hafnarfjarðar er með opið hús frá 10-14, Flatahrauni 14. Frítt inn og ókeypis að fá lánaðan búnað. Opið fyrir alla (hjólabretti, hlaupahjól og BMX).
- Opnir tímar hjá Listdansskóla Hafnarfjarðar. Dansfjör kl. 10, 11 og 12:15 og silki kl. 12:10, 13:15 og 14:15. Hámarksfjöldi í hvern tíma og skráning nauðsynleg
Föstudagur 24. febrúar
- FRÍTT Í SUND frá kl. 6:30-20 í Ásvallalaug og Suðurbæjarlaug og í Sundhöllinni til kl. 21
- Ratleikur fyrir börnin og barnaleiðsögn um Byggðasafn Hafnarfjarðar kl. 13. Opið kl. 11-15
- Plánetusmiðja í Hafnarborg kl. 13-15. Í smiðjunni munu þátttakendur vinna með ýmis litrík efni til þess að búa til sínar eigin plánetur sem breytast í snúningi og ljósi. Saman munu pláneturnar svo mynda sólkerfi sem lýsir upp „himinhvolfið“. Leiðbeinandi er Þórdís Erla Zoëga, myndlistarmaður
- Minecraft námskeið á Bókasafni Hafnarfjarðar kl. 13:00-15:00. Takmörkuð pláss og skráning á bokasafn@hafnarfjordur.is UPPBÓKAÐ
- Brettafélag Hafnarfjarðar er með opið hús frá 10:00-14:00, Flatahrauni 14. Frítt inn og ókeypis að fá lánaðan búnað. Opið fyrir alla ( hjólabretti, hlaupahjól og BMX).
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu. Á vef Hafnarfjarðarbæjar er hægt að nálgast fullt af hugmyndum af áhugaverðum stöðum að heimsækja, leik- og boltavellir eru víða og fjölmargar göngu- og hjólaleiðir liggja um Hafnarfjörð.