Við höfum alltaf gert þetta svona!

Verkefnasögur

Nýlega flutti Sigurjón Ólafsson, sviðsstjóri þjónustu- og þróunarsviðs, fyrirlestur hjá Stafræna hæfniklasanum um mikilvægi mannlega þáttarins í stafrænum umbreytingum.

Markmið Stafræna hæfniklasans eru að auka vitundarvakningu íslenskra fyrirtækja um mikilvægi þess að huga að stafrænni umbreytingu.

Í erindi sínu rakti Sigurjón stafræna vegferð frá árinu 2019 með áherslu á hvernig Hafnarfjarðarbær hefur reynt að fá starfsfólk með í þessa vegferð, auka skilning og þekkingu á því hvað felst í stafrænni umbreytingu. Í stað þess að fá viðkvæðið um að „við höfum alltaf gert þetta svona“ þá heyrist æ oftar hjá starfsfólki „við viljum ekki vinna þetta svona lengur“. Það er skýrasta vísbendingin um að árangur sé að nást í verkefninu.

Í fyrirlestrinum er fjallað m.a. um:

  • Ákvörðun bæjarins um að fara í stafræna umbreytingu
  • Forgangsröðun verkefna í framhaldi af stjórnsýsluúttekt
  • Teymið sem vinnur að verkefninu
  • Sjö leiðarmerki í stafrænni vegferð
  • Mikilvægi þess að sýna áhuga á verkefnum starfsfólks
  • Gæta þess að nota ekki frasa sem almenningur skilur ekki
  • Ekki ofgreina eða ofhugsa verkefnin, mikilvægi þess að framkvæma
  • Skilja þarfir og mæta þörfum íbúa / almennings / starfsfólks
  • Mikilvægi ferlavinnu
  • Innleiðingu tækni / hugbúnaðar

Ábendingagátt