Víkingahátíð í Hafnarfirði
⚔️ VÍKINGAHÁTÍÐ Á VÍÐISTAÐATÚNI 🕒 11:00–18:00 📍 Víðistaðatún Farið aftur í tímann og upplifið hinn víkinglega anda! Á 29. Víkingahátíðinni…
Menntasetrið við Lækinn er kunnuglegt fyrir allflesta Hafnfirðinga, oft þekkt sem Gamli Lækjó, og á þessum gleðilega þjóðhátíðardegi bjóðum við öllum hjartanlega velkomin að kíkja inn fyrir dyr, skoða húsið og njóta dagskrárinnar frá 13:00-22:00. Heitt kaffi á könnunni allan daginn og nóg um að vera. Hlökkum til að sjá ykkur og gleðilegan 17. júní!
LIFANDI VÍDEÓVERK eftir Egil Ara Hreiðarsson bíður áhorfendum að vera meira en bara áhorfendur og verða partur af listaverkinu sjálfu. Áhorfandinn verður í beinu streymi og með því að hreyfa sig um blandast þau inn í efnið á vídeóverkinu. Með þessu verkefni er Egill að skoða liti, hreyfingu og hvernig áhorfandi nálgast myndlist.
Leikhópurinn hlæja og gráta mun sýna brot úr verkefni þeirra í Nýsköpunarsetrinu þann 17. Júní. Hópurinn vinnur að útvarpsleikriti sem reynir að festa andrúmsloftið í Hafnarfirði sumarið 2026 á hlustanlegt form. Allar setningarnar í útvarpsleikritinu er eitthvað sem hópurinn hefur heyrt fólk segja í almenningi í sumar.
Þú finnur leikhópinn í Kubbinum, sýningarsal hússins.
Reynir Snær Skarphéðinsson vinnur að verkefninu Rætur. Rætur er stuttmynd í vinnslu sem tekin upp verður á 16mm filmu og fylgir reglugerðum nýbylgjunnar DOGMA25. Myndin fjallar um konu á þrítugsaldri sem stendur frammi fyrir uppgjöri við fortíð sína og ákveður að heimsækja föður sinn úti á landi, en þau hafa ekki verið í samskiptum um langt skeið. Við komu hennar tekur á móti henni fjölskylda sem hún vissi ekki af.
Þann 17. júní mun Þór Ástþórsson í verkefninu “Tíminn” halda úti gátt þar sem skapandi fólk getur sent inn ljóð, prósa, pælingar og hugmyndir í ritformi varðandi tímann. Svo mun Þór vinna að litlu verkefni út frá þessu innsenda efni þar sem hann færi í samstarf með einum höfundi sem myndi að lokum rata inn í Tímaritið, ritsafn sumarsins. Gáttin verður til staðar í Hafnarfirðinum 17. júní og opin á netinu á instagram reikningum @tima_ritid.
Aster. Listakvárið Aster verður á flakki um Hafnarfjörð á 17. júní að kríta stjörnur og hvetur fólk að leita að þeim. Aster vinnur að málverkum og teikningum í sumar sem draga mikinn innblástur frá sögunni. Finnið sem flestar stjörnur og fáið laufléttan ratleik í boði Asters í eftirmiðdaginn.
Esjar Eiríkur Didziokas er með verkefni í sumar sem snýst um að safna álfavitneskju Hafnarfjarðar saman og útbúa ljóðræna og myndskreytta bók/smárit um huldufólk Hafnarfjarðar. Á 17. júní ætlar hann að ganga um bæinn og dreifa upplýsingum um verkefnið í raunheimum og e.t.v. álfheimum. Dreifingin verður í formi myndskreyttra spjalda sem hvetja fólk til að velta vöngum yfir huldufólkinu sem býr á meðal okkar og hafa samband við Esjar með þær sögur og þá vitneskju sem það býr yfir um þessar mögnuðu verur.
Ish Sveinsson Houle langar að bjóða alla velkomna að plokka rusl með sér frá kl. 10-13:00 á 17. júní. Verkefnið hennar heitir “Plokking rusl” en hún er að plokka rusl út um allan Hafnarfjörð á meðan hún leitar af innblæstri til að skrifa og yrkja. “Ég er líka að læra íslensku og ég býð sérstaklega velkomið fólki sem er líka að læra íslensku. Ég mun vera í öryggisvesti svo fólk finni mig og ég ætla að byrja fyrir framan Bæjarbíó! Sjáumst!
Þann 17. júní kl. 13-16:00 verður Smári Hannesson með upplestur á áður óheyrðum skáldskap í Menntasetrinu við Lækinn.
Opið verður í Ungmennahúsinu Hreiðrinu kl. 17-19, hægt að kíkja við í pool, pílu eða grípa í spil. Fólk á öllum aldri velkomið í heimsókn.
Tónleikar frá kl. 17:15 – 19:00 í Kubbinum í Nýsköpunarsetrinu
Þrumudætur, stelpu pönk hljómsveit með stæla í botn. Þær eru með fjölbreyttar raddir og sögur til að segja. Tónlistinni þeirra hefur verið líkt við Babes in Toyland, Bikini kill og Hole.
Þrumudætur fóru alla leið í úrslit Músíktilraunum í vor.
j. bear & the cubs er hinsegin Hafnfirsk indie-pop hljómsveit sem vann annað sæti í Músíktilraunum 2025. Síðan þá hafa þeir unnið í að útsetja eldri lög söngvarans fyrir alla hljómsveitina ásamt því að semja nýtt efni. Tónlistinni þeirra hefur verið líkt við Cavetown, The Smiths og Bears in Trees.