Komdu og fagnaðu þjóðhátíð með okkur heima í Hafnarfirði
Þjóðhátíðarveisla sem teygir anga sína víða um bæinn verður í boði víðsvegar um Hafnarfjörð. Þjóðhátíðardagurinn hefst með fánahyllingu á Hamrinum kl. 8 í boði Skátafélagsins Hraunbúa og lýkur með glæsilegri kvölddagskrá á Thorsplani.
8:00 FÁNAR DREGNIR AÐ HÚNI OG FÁNAHYLLING Á HAMRINUM
Skátafélagið Hraunbúar flaggar víðsvegar um bæinn.
9:00-13:00 SJÓSUND VIÐ LANGEYRARMALIR
Sjósundsfélagið Urturnar leiðbeina bæjarbúum við sjósund. Fargufan rjúkandi og Sundhöll Hafnarfjarðar opin.
10:00-16:00 BRETTAFÉLAG HAFNARFJARÐAR SELHELLU
Opið hús í nýju hjólabrettaaðstöðunni á Selhellu 7. Hægt verður að koma og leika sér á hjólabrettum, BMX og hlaupahjólum. Aðgangur ókeypis!
10:00-18:00 SIGLINGAFÉLAGIÐ ÞYTUR OPIÐ HÚS
Siglingafélagið Þytur verður með opið hús. Hægt er að fá að prófa hina ýmsu báta sér að kostnaðarlausu. Á opnum húsum er hægt að velja um að róa kajak, fara á SUP bretti, sigla kænum og jafnvel fara í siglingu á kjölbát.
11:00 ÞJÓÐBÚNINGASAMKOMA Í FLENSBORG
Annríki – Þjóðbúningar og skart veitir aðstoð við að klæðast þjóðbúningum og hvetur Hafnfirðinga til að taka fram þjóðbúninga allra landa. Þjóðbúningamyndataka við Hafnarborg kl. 15:00.
12:00 – 15:00 BÓKASAFN HAFNARFJARÐAR
Verið velkomin á Bókasafnið á þjóðhátíðardaginn! Tónlist, faldafreyjur, kaffi og með því – allt með sínu fasta og þjóðlega formi.
Fjallkonan verður skautuð og skrýdd í kyrtil, og fræðsla um íslenska búninginn verður samtímis, en viðburðurinn hefst kl. 12:30. Eftir það tekur nikkan við og við njótum dagsins saman.
Fjölmenningarleg hátíð GETU– hjálparsamtaka. Fögnum bæði þjóðmenningu og fjölmenningu, fjölbreytni og nýjum siðum jafnt sem gömlum.
Tónlist, kaffi kleinur og yndislegheit allan daginn!
12:00-17:00 HAFNARBORG STRANDGÖTU 34
Sýningar Hafnarborgar verða opnar eins og venjulega á þjóðhátíðardaginn 17. júní kl. 12-17 en auk þess mun Annríki halda sérstaka þjóðbúningasýningu í Apótekinu á jarðhæð safnsins, líkt og hefð hefur skapast fyrir í safninu undanfarin ár. Sýningin nefnist Fjallkonan – „[A]f yðar mynd er Ísland kallað „fjallkonan fríð“. Í tilefni 80 ára afmælis íslenska lýðveldisins verður fjallað um hugmyndir Sigurðar Guðmundssonar málara um sérstakan íslenskan þjóðbúning kvenna sem skrýða skyldi allar fjallkonur Íslands. Skautbúningar og kyrtlar, handverk og tíska verður í aðalhlutverki en einnig konurnar sem unnu að búningagerðinni ásamt Sigurði.
Þá má sjá verk eftir þátttakendur sumarnámskeiðs Hafnarborgar í myndlist í bogastofunni á efri hæð safnsins. Í tengslum við sýningu Annríkis bendum við einnig á að þjóðbúningamyndataka fer fram við Hafnarborg kl. 15:00.
Um yfirstandandi sýningar safnsins
Í aðalsal Hafnarborgar er sýningin Í tíma og ótíma. Á sýningunni er sjónum beint að margvíslegum birtingarmyndum tímans í verkum þriggja alþjóðlegra samtímalistakvenna, Örnu Óttarsdóttur, Amy Brener og Leslie Roberts. Tíminn er skoðaður í víðu samhengi, allt frá heimspekilegum vangaveltum um hugtak og eðli hans, til þeirrar persónulegu túlkunar á samtímanum sem einkennir verkin. Hugleiðingarnar um tíma fléttast á mismunandi hátt inn í verk og vinnuaðferðir allra þriggja listakvennanna.
Í Sverrisal er svo einkasýning Guðnýjar Guðmundsdóttur, Kassíópeia. Á sýningunni getur að líta mestmegnis ný og nýleg verk eftir listakonuna, sem hún vinnur á pappír og í leir, auk vídeóverka. Þá speglar hún sjálfa sig í verkunum og dregur fram pælingar um sært egó, sjálfsupphafningu og sjálfselsku, þar sem innblástur er sóttur í gríska goðafræði.
Aðgangur ókeypis – verið öll velkomin.
13:00 SKRÚÐGANGA FRÁ FLENSBORGARSKÓLA
Gengið niður Hringbraut, eftir Lækjargötu og inn Strandgötu að Thorsplani. Lúðrasveit Hafnarfjarðar, Skátafélagið Hraunbúar og víkingar leiða skrúðgönguna.
13:30-16:30 ÍÞRÓTTAHÚSIÐ STRANDGÖTU
Badmintonfélag Hafnarfjarðar verður með opið hús þar sem hægt verður að prófa borðtennis og badminton ásamt þrautabraut fyrir yngstu kynslóðina. Einnig verður hægt að kaupa rjúkandi heitar vöfflur og kaffi til styrktar keppnisfólki félagsins. Fyrir utan íþróttahúsið verður hoppukastali.
13:30 -16:30 HÁTÍÐARHÖLD Á THORSPLANI
Hátíðarhöldin í miðbæ Hafnarfjarðar hefjast með formlegri dagskrá og skemmtiatriðum á Thorsplani.
- Kl. 13:30 Karlakórinn Þrestir
- Kl. 13:35 Ávarp fjallkonu
- Kl. 13:45 Setning hátíðarhalda
- Kl. 13:55 Víkingabardagi – Rimmugýgur
- Kl. 14:15 Sýning frá Listdansskólanum
- Kl. 14:20 Klara Elías
- Kl. 14:40 Una Torfadóttir
- Kl. 15:00 Bríet
- Kl. 15:30 Bestu lög barnanna – Sylvía Erla & Árni Beinteinn
- Kl. 16:00 Lil Curly
Kynnar: Kolbrún María Másdóttir leikkona og Arnór Björnsson leikari
13:30-16:30 HÖRÐUVELLIR
- Hringekja – frábært sextán manna tívolítæki fyrir allan aldur!
Ókeypis aðgangur! - Hoppukastalar
- Andlitsmálun barnanna sér um fría andlitsmálun frá kl. 13:30-16:30
- Snædrottningin og Kóngulóarkonan verða á ferð um hátíðarsvæðið og heilsa upp á gesti frá kl. 14:00-16:00
- Húlladúllan frá kl. 15:00-16:00
- Matarvagnar: Dons Donuts og Tasty
HRAFNISTA/SÓLVANGUR
Kvartettinn Barbari heldur tónleika á Hrafnistu og Sólvangi.
13:30 HELLISGERÐI
Bollakökur í tilefni af 80 ára afmæli lýðveldisins á meðan birgðir endast.
- 13:30-16:30 Pláneta – skynjunarleikstöðvar. Pláneta býður börnum að koma og fagna þjóðhátíðardeginum með sér í skapandi og örvandi skynjunarupplifun. Á þessari einstöku skynjunarleikstund í Hellisgerði verður boðið upp á leikstöðvar á borð við leirsmiðju, hveitisand, sullkrók og margt fleira skemmtilegt!
- 14:30-15:00 Andri Eyvindsson trúbador verður með samsöng fyrir börn á grunn- og leikskólaaldri
- 15:00-15:20 RAUST flytur ættjarðarlög og aðra kórtónlist
STRANDGATA, STRÆTI OG TORG HELLISGERÐI
- Hoppukastalar víðsvegar um hátíðarsvæðið
- Matarvagnar Reykjavík Street Food við Thorsplan: Dons Donuts, Garibe Churros, Wheesh, Pablo Fish & Chips og Komo.
- Óvæntar uppákomur Listahóps Vinnuskóla Hafnarfjarðar
- Teymt undir börnum á hestum frá Hestamannafélaginu Sörla við endann á Austurgötunni frá kl. 14-16
13:30 -16:30 AUSTURGÖTUHÁTÍÐ
- Íbúar Austurgötu bjóða Hafnfirðinga og nærsveitarmenn velkomna líkt og fyrri ár.
15:00 RISA VÍNYLPLÖTUMARKAÐUR, VITASTÍG 1
- Í garðinum á Vitastíg 1 verður vínylplötumarkaður, Soffía Karlsdóttir söngkona kemur fram og boðið verður uppá kaffi, kökur og tónlist allan daginn.
16:30 HAFNARFJARÐARKIRKJA
Íslensk ættjarðarlög í Hafnarfjarðarkirkju. Barbörukórinn heldur tónleika í Hafnarfjarðarkirkju á þjóðhátíðardaginn þann 17. júní klukkan 16:30.
11:00-18:00 VÍKINGAHÁTÍÐ Á VÍÐISTAÐATÚNI
Víkingahátíðin í Hafnarfirði fer fram á Víðistaðatúni dagana 13.-18. júní og er aðgangur ókeypis. Yfir 150 víkingar leggja leið sína í Hafnarfjörð innan og utan landsteinanna.
Dagskráin er fjölbreytt og mikið um að vera, þar má telja; bardagasýningu, handverksýningu, víkingaleiki, eldsmíði, jurtalitun, víkingaskóla fyrir börn, fjölbreyttir sölubásar, bogfimikeppni, veitingar & veigar. Fjöllistamaðurinn Björke snýr aftur eftir langa fjarveru og hljómsveitin Frænde spilar fyrir gesti yfir daginn. Frænde verða með tónleika á Ægir Brugghús á laugardagskvöld.
Hægt verður að prófa bæði bogfimi og axarkast gegn vægu gjaldi, allur ágóði rennur beint í Víkingahátíð í Hafnarfirði. Rimmugýgur býður ykkur velkomin á 27. hátíðina sem þau halda í Hafnarfirði.
11:00-17:00 BYGGÐASAFN HAFNARFJARÐAR
Opið í öllum húsum og ókeypis aðgangur
Kl. 14:00 Lúðrasveit Hafnarfjarðar mun spila leikandi létta sumartónlist.
- Ljósmyndasýning á Strandstígnum: Brot af því besta! Bestu ljósmyndir safnkostsins frá árunum 1890-1980.
- Pakkhúsið, Vesturgata 6, opið 11:00 – 17:00.
Í Pakkhúsinu eru þrjár sýningar í gangi í einu. Í forsal safnsins er þemasýnigin Þorp verður bær; Hafnarfjörður 1960 – 1975. Gert er grein fyrir íbúafjölguninni á þessum árum og hvað það hafði í för með sér. Uppbygging nýrra hverfa, ný atvinnutækfæri, fjölgun skóla og bætt íþróttaaðstaða.
Að vanda er föst sýning um sögu bæjarins frá landnámi til okkar daga og svo er á efstu hæð leikfangasýning sem er sérstaklega ætluð börnum. - Bookless bungalow, Vesturgögu 32, er opið milli kl. 11:00 – 17:00. Ný og uppfærð sýning sem kallast Frá Bookless til bæjarútgerðar þar sem lögð hefur verið aukin áhersla á bæjarútgerðina. Á sýningunni má einnig sjá stássstofu Bookless-bræðra og fræðast um tímabil erlendu útgerðanna í Hafnarfirði á fyrrihluta 20. aldar.
- Siggubær, Kirkjuvegi 10, er opinn milli kl. 11:00 – 17:00. Bærinn er varðveittur sem sýnishorn af heimili sjómanna í Hafnarfirði frá fyrri hluta 20. aldar. Þar má upplifa og kynnast því hvernig alþýðufólk í bænum bjó á þeim tíma.
- Beggubúð, Kirkjuvegur 3b, verslunarminjasýning í þjóðhátíðaranda.
- Sívertsens-húsið, Vesturgata 6, Saga Bjarna Sívertsen „föður Hafnarfjarðar“ og heimili yfirstéttafjölskyldu frá upphafi 19. aldar.
19:00-22:00 TÓNLISTARVEISLA Á THORSPLANI
Kvölddagskrá í hjarta Hafnarfjarðar á sjálfan þjóðhátíðardaginn, fram koma ungir tónlistarmenn í bland við aðra reyndari.
- Kl. 19 – 20 Ungir listamenn hita upp
- Kl. 19:00 Gravity is optional
- Kl. 19:20 Little Menace
- Kl. 19:40 Ballados
- Kl. 20:00 VÆB
- Kl. 20:20 Sigga Ózk
- Kl. 20:40 GDRN
- Kl. 21:10 Háski
- Kl. 21:30 Prettyboitjokkó
Kynnir: Arnór Björnsson leikari
Matarvagnar Reykjavík Street Food við Thorsplan: Dons Donuts, Garibe Churros, Wheesh, Pablo Fish & Chips, Komo og Pop up Pizza.
SAMGÖNGUR OG UMFERÐALOKANIR
Miðbærinn verður lokaður fyrir bílaumferð á meðan á hátíðarhöldum stendur:
- Strandgata við Lækjargötu
- Linnetsstígur við Fjarðargötu og Hverfisgötu 23
- Austurgata frá Linnetsstíg
- Mjósund við Austurgötu
- Tjarnabraut frá Arnarhrauni að Lækjarskóla
- Bílastæði fatlaðra við Linnetsstíg 1
Bæjarbúar eru hvattir til að leggja bílum löglega nálægt miðbænum, ganga eða taka strætó á viðurðarstæði. Bendum á fjölmörg bílastæði við smábátahöfnina, Lækjarskóla, Tækniskólann, Flensborg, Íþróttahúsið við Strandgötu og Víðistaðaskóla.
VINSAMLEGAST, SKILJUM HUNDANA EFTIR HEIMA
Að gefnu tilefni er bent á að hundum líður betur heima en í mannmergð og fólksfjölda.
ÞJÓÐHÁTÍÐARNEFND
Kristjana Ósk Jónsdóttir
Einar Gauti Jóhannsson
Sigurður Pétur Sigmundsson
FRAMKVÆMDANEFND
Tinna Dahl Christiansen
Geir Bjarnason
Margrét Gauja Magnúsdóttir
Stella Björg Kristinsdóttir
Bergþór Snær Gunnarsson
Dagskrá getur breyst án fyrirvara og viðburðir bæst við eða frestast.