Líður að jólum – og nýir titlar flæða í hillurnar. Bókasafn Hafnarfjarðar hampar vel völdum höfundum og framlagi þeirra til jólabókaflóðsins í hverri viku nóvembermánaðar, á þriðjudögum kl. 17:30.

Þriðji höfundurinn í nóvember er Sunna Dís Másdóttir með skáldsöguna Kul, sem jafnframt er hennar fyrsta skáldsaga. Bókin segir frá Unu, sem er send af heimilislækninum í tilraunakennt meðferðarúrræði við kulnun og streitu í litlu fiskiþorpi á Vestfjörðum, yfir dimmasta tíma ársins þegar ekki sést til sólar í tvo mánuði.

Sunna er ein Svikaskálda sem hafa gefið út ljóðabækurnar Ég er ekki að rétta upp hönd, Ég er fagnaðarsöngur og Nú sker ég netin mín sem og skáldsöguna Olíu sem tilnefnd var til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2021. Fyrsta ljóðabók Sunnu, Plómur, kom út haustið 2022. Þá hafa smásögur eftir hana birst í Tímariti Máls og menningar og Iceland Review.

Ábendingagátt