Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
ATHUGIÐ! Fullt er orðið í flotið – takk fyrir frábær viðbrögð og skráningu
————————————————–
Heilsubærinn Hafnarfjörður í samstarfi við FLOT Í KYRRÐ bjóða áhugasömum í aðventuflot sunnudaginn 17. desember kl. 16. Mikilvægt er að skrá sig í flotið og gildir reglan að fyrstur kemur fyrstur fær. Aðgangur er ókeypis og þau sem aldrei hafa prófað flot eru sérstaklega hvött til að skrá sig og prófa. FLOT Í KYRRÐ eru þær Helga Óskarsdóttir jógakennari og Iris Eiríksdóttir jógakennari og nuddari. Þær eru einnig eigendur Yoga hússins í Lífsgæðasetri St.Jó. Þær hafa boðið upp á flotmeðferðir í Suðurbæjarlaug siðan haustið 2019. Flot slökun er ljúf leið til að gefa eftir inn í kyrrð og heilunarmátt vatnsins. Flotmeðferð er mild líkamsmeðferð þar sem líkama þínum er hjálpað með ákveðnum hreyfingum og snertingu að losa um spennu og streitu sem á það til að búa um sig í taugakerfinu og líkamanum. Meðferðin er veitt af faglærðum flotþerapistum sem notast við flotbúnað frá Flothettu. Laugin er hituð sérstaklega til þess að gera upplifun þína og áhrif meðferðarinnar sem besta.
Skráning fer fram í gegnum netfangið: flotslokun@gmail.com
Þetta framtak Heilsubæjarins Hafnarfjarðar er liður í heilsueflingu Hafnfirðinga og vina Hafnarfjarðar og talar í takt við þá heilsustefnu sem sveitarfélagið mótaði 2016. Eitt af þremur yfirmarkmiðum heilsustefnunnar er að finna leiðir og lausir til að efla vellíðan íbúa. Hér í samstarfi við Yoga húsið í Lífsgæðasetri St. Jó. ——————————————
Allt um Flot í kyrrð
Allt um Yoga húsið Allt um Lífsgæðasetur St. Jó
Níu stöðva ratleikur prýðir nú svæðið við Hvaleyrarvatn. Ratleiknum við Hvaleyrarvatn er ætlað að gera göngu barnafjölskyldna í kringum vatnið…
Á fimmtudögum og laugardögum opnum við dyr félagsins fyrir öllum áhugasömum þar sem við bjóðum fólki að prófa hinu ýmsu…
Fjölbreytileiki er forsenda framfara og styrkur samfélagsins Fjölbreytileiki er forsenda framfara og með því að fagna fjölbreytileikanum sköpum við heilbrigðara…