Á mínu máli: Skuggaleikhús – fjöltyngd sögusmiðja
Sunnudaginn 11. október kl. 13-15 bjóða Hafnarborg og GETA upp á fjöltyngda sögusmiðju þar sem þátttakendur skapa persónur og segja…
Solveig Óskarsdóttir, sópran og Sævar Helgi Jóhannsson, píanóleikari og tónskáld, bjóða ykkur velkomin á fjöruga fjölskyldutónleika á Sönghátíð í Hafnarborg. Efnisskráin er fjölbreytt þar sem lögð er áhersla á samsöng og virka þátttöku áheyrenda. Einnig munu 6-12 ára nemendur í skapandi tónlistarsmiðju Sævars stíga á stokk og sýna afrakstur smiðjunnar síðustu fimm daga. Öll velkomin. Ókeypis inn á meðan húsrúm leyfir. Lyftuaðgengi.
Tónleikarnir eru haldnir í samvinnu Hafnarborgar og Sönghátíðar í Hafnarborg. Við þökkum Barnamenningarsjóði Íslands fyrir að styrkja verkefnið.
Nánari upplýsingar HÉR.