Hátíðin verður í kvöld!

Grunnskólahátíð Hafnarfjarðar 2025 verður haldin 6. febrúar frá 19:30 til 22 í Íþróttahúsinu Strandgötu. Gleðin hefst kl. 19:30 og ballinu lýkur kl. 22. Þemað á hátíðinni í ár er Svart&Skart og hafa allir skólar blásið til skreytingakeppni í aðdraganda hátíðarinnar og margir með þemadaga. Grunnskólahátíðin átti að vera haldin í gær, miðvikudaginn 5. febrúar, en sökum veðurs var henni frestað. Þar sem veðurguðirnir lofa betri spá í kvöld og almannarvarnir hafa gefið grænt ljós á hátíðarhöld í kvöld þá hefur verið ákveðið að bíða ekki og halda hátíðina í kvöld mörgum til mikillar gleði. Búist er við allt að 850 nemendum á grunnskólahátíðina.

Góða skemmtun kæru nemendur!

 

 

Ábendingagátt