Þriðjudaginn 3. nóvember kl. 12 bjóðum við ykkur velkomin á næstu hádegistónleika í Hafnarborg en þá verður Björk Níelsdóttir gestur Antoníu Hevesi, píanóleikara og listræns stjórnanda tónleikaraðarinnar. Á efnisskránni verða aríur úr óperum og óperettum eftir Mozart, Puccini, Massenet og Herbert en tónleikarnir bera að þessu sinni yfirskriftina „Margs konar ást“.

Björk Níelsdóttir, sópran, stundaði nám í klassískum söng við Tónlistarskólann í Hafnarfirði hjá dr. Þórunni Guðmundsdóttur og síðar við Tónlistarháskólann í Amsterdam, þaðan sem hún lauk meistaragráðu árið 2015 með hæstu einkunn og hlaut jafnframt sérstaka viðurkenningu fyrir listsköpun. Björk hefur tekið þátt í frumflutningi fjölda ópera, leiksýninga og tónverka í Hollandi, Þýskalandi, Frakklandi og á Íslandi. Þá hefur hún komið fram bæði sem söngkona og trompetleikari á tónleikaferðalögum með Björk og Florence and the Machine.

Björk er meðlimur í Kaja Draksler Oktett, Dúplum dúói, Gadus Morhua, Cauda Collective og Stirni Ensemble. Árið 2020 gaf hún út breiðskífuna Peysur og parruk með Gadus Morhua og smáskífuna „Flowers of Evil“ með Dúplum dúói. Árið 2023 kom svo út ljóðaflokkurinn Allt er ömurlegt í flutningi Dúplum dúós. Á ferli sínum hefur Björk hlotið fjölda viðurkenninga og tilnefninga. Hún var valin Bjartasta vonin á Íslensku tónlistarverðlaununum árið 2018 og var tilnefnd sem söngvari ársins á Grímuverðlaununum árin 2019 og 2023, auk þess að hljóta tilnefningu sem söngvari ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum árið 2021. Árið 2026 hlaut hún Grímuverðlaunin sem söngvari ársins.

Antonía Hevesi, píanóleikari, hefur frá upphafi verið listrænn stjórnandi hádegistónleika í Hafnarborg, sem hafa verið fastur liður í dagskrá safnsins síðan 2003. Þar hefur Antonía fengið til liðs með sér marga af fremstu söngvurum landsins en markmiðið með tónleikunum að veita gestum tækifæri til að njóta lifandi tónlistarflutnings í góðu tómi. Þá fara hádegistónleikarnir að jafnaði fram fyrsta þriðjudag hvers mánaðar yfir vetrartímann.

Tónleikarnir hefjast stundvíslega kl. 12 og standa yfir í um hálftíma. Húsið opnar kl. 11:30 og eru tónleikarnir opnir öllum á meðan húsrúm leyfir. Aðgangur ókeypis.

Smelltu hér til að kynna þér tónleikadagskrá haustmisseris 2026 og sjá hvað er framundan í Hafnarborg.

 

Ábendingagátt