Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Hér er að finna upplýsingar um úrræði fyrir börn og fjölskyldur á vegum Hafnarfjarðarbæjar
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Hafnarfjarðarhlaupið verður haldið í þriðja skiptið fimmtudaginn 12. júní kl. 20:00. Hlaupin verður frábær leið frá miðbænum um íbúða- og atvinnusvæði hafnarinnar. Hafnarfjarðarhöfn og Eimskip opna sérstaklega tollsvæði til að búa til möguleika á einni hröðustu götuhlaupabraut landsins. Boðið er upp á tvær vegalengdir, 5 km og 10 km. Hlaupið er haldið af Frjálsíþróttadeild FH í samvinnu við Hafnarfjarðarbæ, Fjarðarkaup, Nike og fleiri styrktaraðila.
Hlaupaleiðin er marflöt og sem gerir hlaupið frábært fyrir bætingar en á sama tíma mjög aðgengilegt fyrir þá sem eru að hefja hlaupaferilinn. Hringurinn er 5 km og þátttakendur í 10 km hlaupi hlaupa tvo hringi.
Sigurvegarar karla og kvenna í 5 km og 10 km fá vegleg verðlaun frá Nike. Sigurvegarar í aldursflokka fá viðurkenningu. Heppnir þátttakendur frá útdráttarverðlaun. Öllum þátttakendum verður boðið í sund að loknu hlaupi.
Ræst er á Strandgötu við Thorsplan. Hlaupið er eftir Vesturgötu og út fyrir Norðurbakkann. Þar er farið inn á Strandstíginn og Norðurbakkinn hlaupinn til baka. Við strætóskýli á móts við Íþróttahúsið er farið út á Strandgötu og hlaupið út á höfnina við Hafró. Þar er farið inn á lokað svæði Hafnarfjarðarhafnar og áfram að lokuðu athafnasvæði Eimskips. Þaðan er farið að Óseyrarbraut að Fornubúðum og Strandgatan hlaupin til baka. Við Hafnarfjarðarkirkju er beygt af hringtorgi við Lækjargötu og inn Strandgötu að Thorsplani. Hlaupaleiðin er marflöt í kringum höfnina í fallegasta firði landsins. Þarna verða bætingar.
Vegna götulokana verða tímamörk í 10 km 80 mínútur. Þeir sem sjá ekki fram á að ná á þeim tíma eru hvattir að skrá sig í 5 km hlaup.
Nánar um hlaupið á hlaup.is
Heilsubærinn Hafnarfjörður auglýsir eftir liðum sem vilja taka þátt í kappróðri á höfninni á Sjómannadaginn sunnudaginn 1. júní. Hefð hefur…