Hamingjudagar í Hafnarfirði 2026
Hamingjudagar í Hafnarfirði Sjóbað, jóga nidra, söngpartý og samvera — Allt sem kveikir á hamingjunni bíður þín á Hamingjudögum í…
Fimmtudaginn 3. september kl. 17:30 – gengið frá bílastæði við Kaldárselsveg
Komdu með í HamingjuHelgafellsgöngu þegar Rúnar Pálsson leiðir þátttakendur upp á Helgafell á Hamingjudögum í Hafnarfirði.
Helgafell hefur lengi verið eitt af einkennisfjöllum Hafnarfjarðar og fáir þekkja sögu þess og einstaka stemningu betur en Rúnar. Hann hefur gengið á fjallið ótal sinnum og síðustu 30 ár séð um gestabókina á toppnum sem geymir ótal kveðjur og minningar þeirra sem lagt hafa leið sína á fjallið.
Gangan er einstakt tækifæri til að njóta útivistar, hreyfingar og góðrar samveru á einum fallegasta útsýnisstað bæjarins.
Hvort sem þú hefur gengið á Helgafell hundrað sinnum eða ert að leggja leið þína þangað í fyrsta skipti, þá ert þú hjartanlega velkomin(n) með.
Göngum saman upp á Helgafell!
Hamingjudagar í Hafnarfirði Sjóbað, jóga nidra, söngpartý og samvera — Allt sem kveikir á hamingjunni bíður þín á Hamingjudögum í…
Hamingjuhlaup – 10 kílómetrarnir hans Krissa Þriðjudaginn 1. september kl.17:30 Hlaupahópur FH leiðir hlaupið og upphitunina og Krissi kemur okkur…
Fimmtudaginn 3. september kl. 17:30 – gengið frá bílastæði við Kaldárselsveg Komdu með í HamingjuHelgafellsgöngu þegar Rúnar Pálsson leiðir þátttakendur…
Föstudaginn 4. september kl. 20:00 Komdu og syngdu með undir berum himni í Hellisgerði þegar Guðrún Árný leiðir sannkallað HamingjuSöngpartý…
Miðvikudaginn 9. september kl. 17:00 – lautin við Skúlaskeið Gefðu þér stund til að staldra við og næra líkama og…
Laugardagurinn 12. september kl. 12 – lautin við Skúlaskeið Gefðu þér stund til að staldra við og næra líkama og…
Þriðjudaginn 15. september kl.17:30 Opið í Herjólfsgufunni frá kl. 17 – 19! Verði fjöldi þátttakenda það mikill að gufan fyllist þá…
Sunnudaginn 20. september frá kl. 13 – 16 Komdu og njóttu notalegrar samveru í frábærum félagsskap á prjónakaffi á Ægi!…
Miðvikudaginn 23. september kl. 19:00 – Gengið frá Víðistaðakirkju Komdu með í HamingjuGöngu um Víðistaðasvæðið með Jónatani Garðarssyni á Hamingjudögum…
Föstudaginn 25. september kl. 20:00 Njóttu notalegrar tónlistarstundar í einstöku umhverfi Hellisgerðis þegar Valdimar Guðmundsson stígur á svið ásamt undirleikara…