Tíu ára HEIMA-hátíð

HEIMA er 10 ára í ár og fer fram síðasta vetrardag – 24. apríl í Hafnarfirði.  HEIMA-hátíðin hefur rækilega fest sig í sessi sem skemmtileg og einstök tónlistarhátíð þar sem boðið er upp á öðruvísi upplifun og meiri nánd en tónleikagestir og listamenn eiga almennt að venjast. Þeir sem koma fram á HEIMA í ár eru:

  • Rebekka Blöndal
  • Klara Elias
  • Døgg Nónsgjógv (Færeyjar)
  • Margrét Eir
  • Brek
  • Elín Hall
  • Tómas R. Einarsson
  • Rock Paper Sisters
  • GDRN og Magnús Jóhann
  • Hipsumhaps
  • Emmsjé Gauti
  • KUL
  • Soffía Björg og Pétur Ben
  • Ceasetone

Miðar á HEIMA eru til sölu á tix.is 

Aldrei fleiri listamenn en í ár

Sem fyrr munu Hafnfirðingar opna heimili sín í miðbæ Hafnarfjarðar og í hverju húsi spila tveir mismunandi listamenn eða hljómsveitir. Fríkirkjan í Hafnarfirði verður eitt af HEIMA – húsum eins og undanfarin ár og hátíðin nýtir einnig sviðið í Bæjarbíói sem endurspeglar fjölbreytileika hátíðarinnar – allskonar hús og allskonar tónlist. Listamennirnir eru fjórtán í ár og hafa aldrei verið fleiri. Allir koma fram tvisvar í sitthvoru HEIMA-húsinu í miðbænum. Það eru ekki allir að spila á sama tíma þannig að þeir sem eru duglegastir að rölta milli húsa sjá flest atriði.

Døgg Nónsgjógv frá Færeyjum er sérstakur gestur HEIMA í ár

HEIMA vekur sérstaka athygli á Døgg Nónsgjógv frá Færeyjum sem er sérstakur gestur HEIMA í ár. Heima á rætur að rekja til HOYMA í Gøtu í Færeyjum og alltaf reynt að hafa eitt atriði frá Færeyjum á HEIMA. Døgg Nónsgjógv, sem sendi frá sér fyrstu EP plötuna Døggfallin síðasta haust, er á leiðinni á SPOT festival í Danmörku sem leggur áherslu á nýja og spennandi tónlist frá Skandinavíu.

Hátíðin verður sett í Ægi Brugghús klukkan 19.00 með lifandi tónlist en þar verða armbönd líka afhent á hátíðardag frá kl. 14.00. Fyrstu HEIMA-tónleikarnir hefjast kl. 19.30 í Fríkirkjunni og þeim síðustu lýkur um kl. 23.00.Lokaatriðin í Bæjarbíói eru tvö að þessu sinni, en þar hefst dagskrá klukkan 23:15 og stendur í c.a. klukkustund. HEIMA er tónlistarhátíð sem býður uppá nánd flytjenda og gesta sem og fjölbreytta tónlist fyrir allskonar fólk á öllum aldri.

Meira á https://www.facebook.com/heimatonlistarhatid

Ábendingagátt