Látum hinsegin málefni í Hafnarfirði okkur varða

Hinsegin Hittingar í Hafnarfirði – HHH – fagnaði nýverið eins árs afmæli og langar skipuleggjendum hittinganna því að bjóða í kaffi, fræðslu og spjall. HHH býður upp á hinsegin félagsstarf fyrir ungmenni alla fimmtudaga í íþróttahúsi Lækjarskóla. Öll fimmtudagskvöld er opið fyrir ungmenni fædd 2007-2009 frá 19:30-22:00 og tvisvar í mánuði er miðdeildarstarf fyrir börn fædd 2012- 2010 á milli 17:00-19:00.

Öll velkomin á öllum aldri!

Markmiðið með opna húsinu er að bjóða forvitnum að kynnast starfinu ásamt þeim sem vilja auka þekkingu sína á hinsegin málefnum. Einnig kjörið tækifæri fyrir starfsfólk skóla og leikskóla, foreldra/forsjáraðila og aðra aðstandendur hinsegin ungmenna til að kynnast starfinu 🙌🏻

Dagskrá á opnu húsi:

  • Kynning á starfi HHH
  • Hinsegin 101; Ástrós Erla félagsráðgjafi og fræðari hjá Samtökunum ‘78 mætir á svæðið full upplýsinga um hinsegin flóruna.
  • Opið spjall við starfsfólk HHH!
  • Í boði verða kaffi og léttar veitingar.
Hjólastólaaðgengi í íþróttahúsi Lækjarskóla er gott.
Ábendingagátt