Hljóð // Markús Bjarnason / Stúdíó Suð
Sýningin fjallar um hljóð í ólíkum birtingarmyndum; hljóð sem verður til og hljóð sem hverfur. Þar mætast hljóðdempandi málverk og…
Sýningin fjallar um hljóð í ólíkum birtingarmyndum; hljóð sem verður til og hljóð sem hverfur. Þar mætast hljóðdempandi málverk og verk sem gefa frá sér hljóð. Sameiginlegi þráðurinn er ósýnileg virkni: að eitthvað sé að gerast í rýminu þó það sjáist ekki.
Miðpunktur sýningarinnar er nýtt verk sem sameinar myndlist, hljóðvist og hljóð. Verkið er fyrst og fremst málverk, en inniheldur jafnframt hljóðdempandi efni og ósýnilega hátalara.
Ég heiti Markús Bjarnason og vinn á mörkum hönnunar og myndlistar. Öll verk mín eru handsmíðuð frá grunni með það að markmiði að hafa áhrif á rýmið, bæði sjónrænt og hljóðrænt.
Opnunartímar
Föstudagur 18-21
Laugardagur 13-20
Sunnudagur 13-18
LG // Litla Gallerý er styrkt af Hafnarfjarðarbæ vegna viðburðarins.