Íslandsmeistaramótið hefst á Ásvöllum á mánudaginn

Dagana 15.-25. maí 2023 fer Íslandsmeistaramótið í skák (Skákþing Íslands) fram við glæsilegar aðstæður á Ásvöllum í Hafnarfirði og stefnir allt í að mótið í ár verði eitt það sterkasta í skáksögunni. Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri Hafnarfjarðar tekur fyrsta leikinn á mótinu sem hefst kl. 15 næstkomandi mánudag.

Átta stórmeistarar meðal keppenda

Af tólf keppendum eru átta stórmeistarar (af alls 16 sem hafa verið útnefndir) sem er met. Auk þess einn stórmeistari kvenna, einn alþjóðlegur meistari, einn FIDE-meistari og einn fulltrúi titillausra. Helmingur keppendanna hafa áður verið Íslandsmeistarar. Þar fer Hannes Hlífar Stefánsson fremstur í flokki sem er þrettánfaldur Íslandsmeistari í skák. Glæsileg umgjörð verður á mótinu og verða allar skákirnar í beinni útsendingu.

Keppendalistinn 2023

  1. Hjörvar Steinn Grétarsson (2539-2) – stórmeistari
  2. Hannes Hlífar Stefánsson (2521-13) – stórmeistari
  3. Henrik Danielsen (2501-1) – stórmeistari
  4. Héðinn Steingrímsson (2491-3) – stórmeistari
  5. Vignir Vatnar Stefánsson (2470-0) – stórmeistari
  6. Jóhann Hjartarson (2466-6) – stórmeistari
  7. Bragi Þorfinnsson (2431-0) – stórmeistari
  8. Guðmundur Kjartansson (2402-3) – stórmeistari
  9. Hilmir Freyr Heimisson (2353-0) – alþjóðlegur meistari
  10. Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2338-0) – FIDE-meistari
  11. Lenka Ptácníková (2099-0) – stórmeistari kvenna
  12. Jóhann Ingvason (2076-0)

(skákstig og íslandsmeistaratitlar í opnum flokki í sviga)

Styrktaraðilar mótsins 2023

  • Hafnarfjarðarbær
  • Algalíf
  • Teva
  • Lengjan
  • Guðmundur Arason
  • MótX
Ábendingagátt