Heisluræktarstyrkur

Evrópubúar sameinast í vikunni undir slagorðinu #BeActive

Íþróttavika Evrópu (European Week of Sport) er haldin dagana 23. – 30. september 2023 í yfir 30 Evrópulöndum. Markmið vikunnar er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu um alla Evrópu og sporna þannig við auknu hreyfingarleysi meðal almennings. Íþróttavikan er ætluð öllum óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi. Áhersla er lögð á að höfða til grasrótarinnar og hvetja almenning til þess að hreyfa sig oftar og meira í sínu daglega lífi.

Yfirlit Íþróttaviku Evrópu 2023 í Hafnarfirði

Gerum Íþróttaviku Evrópu glæsilega saman heima í Hafnarfirði!

#BeActive eru einkunnarorð Íþróttaviku Evrópu sem haldin er í yfir 30 Evrópulöndum vikuna 25. september – 1. október. Endilega fylgist með á samfélagsmiðlum og verið #Beactive með landanum! Þú finnur vikuna í heild á landinu öllu á Facebook undir BeActive Iceland og á Instagram undir #BeActiveIceland. Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands heldur utan um verkefnið. Hægt er að hafa samband í gegnum netfangið: beactive@isi.is eða í síma 514-4000. Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) hefur líkt og síðastliðin ár hlotið styrk frá Evrópusambandinu í gegnum Erasmus+ styrkjakerfið vegna Íþróttaviku Evrópu.

Nánari upplýsingar er að finna á vef BeActive á Íslandi

Beactive á Íslandi er líka á Facebook

Ábendingagátt