Fimmtudaginn 8. desember heldur Kvennakór Hafnarfjarðar jólatónleika í Víðistaðakirkju sem bera yfirskriftina Blikar stjarna. Þar verða flutt ýmis klassísk jólalög í bland við nýrri lög sem öllum er ætlað að færa okkur hátíðarstemmningu og gleði jólanna. Þetta eru fyrstu tónleikar Kvennakórs Hafnarfjarðar undir stjórn Arngerðar Maríu Árnadóttur. Meðleikari á píanó er Dagný Arnalds. Tónleikarnir í Víðistaðakirkju hefjast kl. 20:00 og fer miðasala fram við innganginn. Miðaverð er 3.500 kr. en ókeypis er fyrir börn 12 ára og yngri.

Ábendingagátt