Bókasafn Hafnarfjarðar opnar myndlistarsýningu á verkum Kristbergs Ó. Péturssonar í Glerrýminu.

Kristbergur er fæddur í Hafnarfirði 1962. Hann stundaði nám við Myndlista- og Handíðaskóla Íslands 1979-’85 og við Ríkisakademíuna í Amsterdam 1985-’88.
Á námsárunum vann hann mest að grafíkverkum og teikningum en að námi loknu sneri hann sér meira að málverkinu.
Undanfarin ár hefur hann að auki unnið verk í vatnsliti, grafík, ljósmyndun og stafræna myndvinnslu.
Kristbergur hefur haldið fjölmargar sýningar á verkum sínum heima og erlendis og verk hans eru í eigu nokkurra helstu listasafna landsins. Hann hefur fimm sinnum hlotið listamannalaun og einnig hefur hann hlotið hvatningarstyrk og verkefnastyrki frá Menningarmálanefnd Hafnarfjarðar.
Hann hefur gefið út bækur með verkum sínum og eina myndskreytta ljóðabók. Hann býr í Hafnarfirði.

Í verkunum á sýningunni er ýmsum ólikum miðlum blandað saman svosem dúkristum, bleksprautuprenti og málun. Myndefnið er frá bernsku- og unglingsárum Kristbergs. Segja má að um upprifjun og endurvinnslu sé að ræða á stefnumótum ólíkra minningabrota.

Kristbergur er með vefsíðu þar sem hægt er að kynna sér feril hans.
https://kristbergur.is/
Ábendingagátt