Frístundamessa fyrir börnin í Hafnarfirði
Frístundamessa í Hafnarfirði Þann 29. ágúst koma íþrótta- og tómstundafélög Hafnarfjarðar saman og kynna starfsemi sína fyrir börnum og foreldrum…
Hafnarfjarðarbær boðar til kynningarfundar í Bæjarbíói miðvikudaginn 12. júní kl. 17 í tengslum við nýtt samkomulag sveitarfélagsins við HS Orku um rannsóknir og nýtingu auðlindaréttinda í Krýsuvík til vinnslu á heitu vatni, ferskvatni og til raforkuframleiðslu. Samhliða verða kynntar hugmyndir um auðlindagarð og mögulega uppbyggingu innviða á svæðinu. Hafnarfjarðarbær er eigandi Krýsuvíkur, sem er verðmætt útivistarsvæði og vinsæll áfangastaður ferðafólks, og verður áhersla lögð á að öll uppbygging falli vel að umhverfinu og að sérstaða svæðisins haldist og fái að njóta sín.
Fundarstjóri er Skarphéðinn Orri Björnsson, formaður skipulags- og byggingaráðs og formaður stýrihóps um uppbygginguna í Krýsuvík. Húsið opnar kl. 16:30.
Ítarlegri upplýsingar um samkomulagið
Fundurinn er öllum opinn og áhugasöm hvött til að mæta.
Fundurinn verður einnig í beinu streymi á Facebooksíðu Hafnarfjarðarbæjar.