Leik og Sprell verður í Hafnarfirði í sumar!

Leik og Sprell er söng- og leiklistarnámskeið sem ferðast vítt og breitt um landið og er opið fyrir börn og unglinga á aldrinum 6-13 ára. Allir fá tækifæri til að syngja, leika og sprella. Kenndur er grunnur í söngtækni og túlkun og farið í leiki sem ýtir undir sköpun og tjáningu. Út frá lögunum sem börnin hafa valið sér, spuna og leik búum við til sýningu sem er opin fyrir aðstandendur.

Kennt verður í sal Hafnarborgar tímabilið 29. júní-3. júlí, kl. 13:00-16:00. Kennari er Bjarklind Björk Gunnarsdóttir.
Nánari upplýsingar um námskeið, kennara og skráningu má finna á leikogsprell.is
Fyrir allar fyrirspurnir má ávallt einnig hafa samband á leikogsprell@gmail.com

Hlökkum til að sprella með ykkur í sumar!

Ábendingagátt