Lífskraftsdagurinn – 28. september 2024
Snjódrífurnar, sem standa að góðgerðarfélaginu Lífskrafti, í samstarfi við 66° Norður og Hafnarfjarðarbæ standa fyrir Lífskraftsdeginum laugardaginn 28. september næstkomandi í landi Helgafells í Hafnarfirði. Á deginum verður boðið upp á ýmsa hreyfingu fyrir gesti og gangandi auk þess sem Lífskraftspeysan verður til sölu sem framleidd er í samstarfi við 66°Norður.
Markmiðið með deginum er að sýna samstöðu gegn krabbameinum ásamt því að minna á mikilvægi útivistar og sjálfseflingar í endurhæfingu meðan á veikindum stendur og/eða eftir veikindi.
Dagskrá hefst kl. 10 með sölu á Lífskraftspeysunni og stuttum ávörpum bæjarstjóra og Snjódrífa einnig mun plötusnúður gleðja gesti með skemmtilegri tónlist.
Boðið verður upp á þrenns konar hreyfingu á svæðinu og munu allir hreyfihóparnir leggja af stað kl. 11:00:
HLAUP – Hlaupið verður fram hjá Helgafelli og Valahnúkum að Húsfelli, þaðan yfir að Búrfellsgjá og því næst til baka að bílastæðinu við Helgafell.
HJÓL – Hjólað verður að Valahnúkum og meðfram þeim, þaðan að Helgafelli og í kringum fellið og endað á bílastæðinu við Helgafell.
GANGA – Gengið verður á Helgafellið upp gilið svokallaða og sömu leið til baka á bílastæðið. Tveir gönguhópar verða í boði, annar hraðari og hinn hægari.
Bleika Lífsskraftspeysan verður til sölu meðan á viðburðinum stendur. Hún kostar 16.000 kr. og mun allur ágóði af sölunni renna til einstaklinga og fjölskyldna sem glíma við krabbamein.
Svæðið í kringum Helgafell er algjörlega frábært til útivistar og hentar jafnt stórum sem smáum.
Finndu þinn lífskraft og hreyfðu þig með okkur til stuðnings baráttunnar gegn krabbameinum.
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest. Sjá viðburð hér: https://www.facebook.com/events/1551086259170970

Snjódrífurnar, 66°Norður og Hafnarfjarðarbær
Aðkoma að Helgafelli:
Keyrt er í átt að Kaldárseli í gegnum hesthúsabyggðina fyrir ofan Hafnarfjörð. Sjá staðsetningu bílastæðis á Google Maps: https://goo.gl/maps/bEKcPdWTa7iyWPXx6
Ábendingagátt