Hjartasteinn til heiðurs Magnúsar Kjartanssonar tónlistarmanns verður afhjúpaður við Bæjarbíó laugardaginn 20. júlí kl. 18:30. Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri afhjúpar hjartasteininn.

Hafnfirðingar eiga mikið í Magnúsi. Hann bjó í Hafnarfirði í 33 ár áður en hann flutti ásamt konu sinni í Grímsnesið. Þar hafa þau búið í rúman áratug. Það má því segja að Magnús sé í aðra röndina Hafnfirðingur þótt borinn og barnfæddur í Keflavík. Á þeim tíma sem Magnús og fjölskylda bjuggu í Hafnarfirði var hann viðriðinn upptökur, útsetningar, hljóðfæraleik og upptökustjórn á mörgum af þekktustu lögum 8. 9. og 10. áratug síðustu aldar. Má þar nefna Brimkló, HLH flokkinn, Halla og Ladda, Brunaliðið, Vilhjálm Vilhjálmsson, Geirmund Valtýsson, auk fjölda annarra verkefna sem unnin voru í Hljóðrita í Hafnarfirði að mestu. Einnig samdi hann á þeim tíma sem hann bjó í firðinum mörg af sínum þekktustu lögum.

 Magnús Kjartanssson er fjórði listamaðurinn sem hlýtur Hjartasteininn í Hjarta Hafnarfjarðar. Fyrir eru hjartasteinar til heiðurs Björgvini Halldórssyni, tónlistarmanni og bæjarlistarmanni Hafnarfjarðar 2018, Þórhalli Sigurðssyni, Ladda leikara og tónlistarmanni, og þá er hjartasteinn í minningu Guðrúnar Helgadóttur rithöfundar.

Ábendingagátt