Mozart við kertaljós í Hafnarfjarðarkirkju 19.des kl.21.00

Camerarctica heldur sína árlegu kertaljósatónleika í kirkjum nú rétt fyrir jólin í þrítugasta sinn.

Hópurinn hefur leikið ljúfa tónlist eftir Mozart í þrjátíu ár og þykir mörgum ómissandi að koma úr miðri jólaösinni inn í kyrrðina og kertaljósin í rökkrinu. Hópinn skipa að þessu sinni þau Ármann Helgason, klarinettuleikari, Eydís Franzdóttir óbóleikari, Hildigunnur Halldórsdóttir og Bryndís Pálsdóttir fiðluleikarar, Svava Bernharðsdóttir víóluleikari og Sigurður Haldórsson sellóleikari.

Á dagskránni verða tvær af perlum Mozarts Óbókvartettinn kv. 370 og hinn margrómaði Klarinettukvintett kv. 581. Að venju lýkur tónleikunum á því að Camerarctica leikur jólasálminn góða,“Í dag er glatt í döprum hjörtum” úr Töfraflautunni eftir Mozart og verða kirkjurnar einungis lýstar upp með kertaljósum.

Tónleikarnir verða í eftirfarandi kirkjum:

Hafnarfjarðarkirkju
mánudagskvöldið 19. des

Kópavogskirkju
þriðjudagskvöldið 20. des

Garðakirkju
miðvikudagskvöldið 21. des

Dómkirkjunni í Reykjavík
fimmtudagskvöldið 22. des

Tónleikarnir eru klukkustundarlangir og hefjast þeir allir klukkan 21.00.

Aðgangseyrir er kr. 3500 og kr. 2500 fyrir nemendur og eldri borgara og frítt inn fyrir börn.
Miðasala á Tix.is og við innganginn.

 

Miðar hér:
https://tix.is/…/mozart-vi-kertaljos-i-fjorum-kirkjum/

Nánari upplýsingar hér:
https://www.facebook.com/events/511634331003580

Ábendingagátt