Opið hús fyrir fyrirtæki í Hafnarfirði miðvikudaginn 10. maí
Nýsköpunarsetrið við Lækinn verður með opið hús fyrir starfsfólk fyrirtækja í Hafnarfirði miðvikudaginn 10. maí frá kl. 8:30 – 13. Verkefnastjórar í nýju nýsköpunarsetri, þær Margrét Lena Kristensen og Sólveig Rán Stefánsdóttir, taka fagnandi á móti gestum á þessum tíma með kynningu og spjalli um þá uppbyggingu sem fyrirhuguð er á fyrstu hæðinni í Menntasetrinu við Lækinn.
Nýsköpun í heimabyggð
Nýsköpunarsetrið við Lækinn er nýtt verkefni sem mun hefja starfsemi næsta haust. Þar verður boðið upp á allskyns smiðjur og námskeið, ráðgjöf, aðstöðu til funda og fyrirlestra en einnig faglega leiðsögn og stuðning frá sérfræðingum í nýsköpun, vöruþróun og stofnun fyrirtækja. Fyrst um sinn er áhersla lögð á leik- og grunnskóla og að efla nýsköpun þvert á allar greinar með það að markmiði að auka kennslu nýsköpunar og verk- og tæknigreina í skólum. Í Nýsköpunarsetrinu við Lækinn verður aðgengi að nýjustu tækni og búnaði fyrir alla á öllum aldri á miðlægum stað.
Nýsköpunarsetrið við Lækinn á Facebook
Skapandi samfélag lausna, þróunar og tækni
Með nýsköpunarsetri vill Hafnarfjarðarbær styrkja nýsköpun í heimabyggð og ýta undir og hvetja íbúa, félagasamtök og fyrirtæki til að vera skapandi og frumkvöðlaþenkjandi. Því höldum við opið hús og bjóðum ykkur að koma og sjá hvaða möguleika setrið býður upp á fyrir fyrirtæki og starfsfólk. Þar verður boðið upp á léttar veitingar á meðan starf og stefna setursins er kynnt og rætt um aðkomu fyrirtækja að starfsemi og uppbyggingu setursins og hvernig setrið getur styrkt nýsköpun innan fyrirtækja og aukið samfélagsleg áhrif þeirra.
Sjáumst á opnu húsi 10. maí!
Opið hús fyrir almenning og aðra áhugasama er fyrirhugað í júní. Nánar auglýst síðar.
Vinna hafin við Nýsköpunarsetur Hafnarfjarðar | Hafnarfjörður (hafnarfjordur.is)