Opið hús vegna iðnaðarsvæðisins I4 og Álhellu 1

Opið hús verður á miðvikudaginn 6. desember nk. frá 9:00 – 16:00 að Norðurhellu 2, 221 Hafnarfirði þar sem verður hægt að kynna sér tillögu að breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar vegna Iðnaðarsvæðisins I4 og breytingu á deiliskipulagi Kapelluhrauns 2. áfanga vegna Álhellu 1. Um er að ræða 1,2ha stækkun iðnaðarsvæðis I4 inn á óbyggt svæði til austurs vegna stækkunar lóðarinnar Álhellu 1. Fyrirhugað á Álhellu 1 er endurvinnslustöð og felst í framkvæmdinni m.a. móttaka og geymsla fyrir útflutning á brotajárni þ.m.t. faratækjum ásamt uppsetning málmtætara. Hægt verður að fá svör við spurningum sem tengjast þessari skipulagsgerð.

Öll áhugasöm eru hvött til að mæta 

Gögn vegna máls má finna á vef Skipulagsgáttar 

Ábendingagátt