Opið hús vegna Þorlákstúns
Opið hús verður á þriðjudaginn 10. september nk. frá kl. 9 til 16 að Norðurhellu 2, 221 Hafnarfirði, þar sem hægt verður að kynna sér tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013 – 2025 vegna Þorlákstúns.
Þorlákstún er skilgreint sem Skógræktar- og landgræðslusvæði (SL4) í Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025. Samkvæmt tillögunni er gert ráð fyrir að landnotkun verði breytt í íbúðarbyggð og verður það hluti af íbúðabyggð Hvaleyrarholt ÍB7. Gert er ráð fyrir byggð með allt að 50 íbúðum sem fellur vel að aðlægri byggð en nýta góðan hluta Þorlákstúns til útvistar og leikja.