Í verkunum skoða ég sambandið milli hryssu og folalds; traustið, verndina og hljóðu tengslin sem myndast á milli þeirra. Þetta eru tengsl sem birtast ekki alltaf í snertingu eða augljósu látbragði, heldur í nærveru, fjarlægð, líkamsstöðu og athygli.

Hryssan stendur fyrir ást, skjól og leiðsögn, á meðan folaldið nálgast heiminn af forvitni, viðkvæmni og vaxandi sjálfstæði. Á milli þeirra verður til rými sem er bæði líkamlegt og tilfinningalegt; rými þar sem traust fær að myndast og tengsl fá að vaxa.

Íslenski hesturinn er mér hugleikinn sem tákn um næmni, seiglu og nánd við náttúruna. Í málverkunum beini ég sjónum að þeim fíngerðu tengslum sem myndast á milli hryssu og folalds; augnablikum þar sem traust, umhyggja og sjálfstæði fara saman.

Rýmið okkar á milli fjallar um ósýnilegu böndin sem verða til þegar tvær verur treysta hvor annarri. Það fjallar um nándina sem getur búið í fjarlægðinni og um tengslin sem halda okkur saman án þess að binda okkur föst.

———

Snædís Björt Guðmundsdóttir (2001) lauk námi á listmálarabraut við Myndlistaskólann í Reykjavík árið 2026.

Snædís vinnur með olíumálverk þar sem dýr, náttúra og tilfinningaleg tengsl eru í brennidepli. Viðfangsefni hennar eru gjarnan hestar og önnur dýr, en í verkunum leitast hún við að fanga nærveru þeirra, persónuleika og það hljóða samtal sem getur myndast milli manns, dýrs og umhverfis.

Íslensk náttúra, litir hennar og birta eru mikilvægur hluti af myndheimi hennar. Verk hennar einkennast af hlýju, sterkri tilfinningu fyrir litum og næmri athugun, þar sem áhersla er lögð á tengingar og núvitund.

Samhliða eigin myndlist tekur hún að sér sérpantanir, meðal annars málverk af gæludýrum, hestum og landslagsmyndum. Einnig býður hún upp á eftirprentanir af völdum verkum.

Sérstök sýningaropnun verður fimmtudaginn 6. ágúst frá 18:00-21:00 og þú ert velkomin !

Sýningarstjórn: Elvar Gunnarsson

Aðrir opnunartímar:

Fös. 7. ágúst 13:00 – 18:00
Lau. 8. ágúst 13:00 -17:00
Sun. 9. ágúst 14:00 – 17:00

LG // Litla Gallerý er styrkt af Menningar og ferðamálanefnd
Hafnarfjarðarbæjar vegna viðburðarins

—————————–

In these works, I explore the relationship between a mare and a foal; the trust, protection, and quiet bonds that form between them. These connections are not always expressed through touch or obvious gestures, but through presence, distance, body language, and attention.

The mare represents love, shelter, and guidance, while the foal approaches the world with curiosity, vulnerability, and growing independence. Between them, a space emerges that is both physical and emotional; a space where trust can form and connection can grow.

The Icelandic horse is meaningful to me as a symbol of sensitivity, resilience, and closeness to nature. In the paintings, I focus on the subtle bonds that form between mare and foal; moments where trust, care, and independence coexist.

The Space Between Us is about the invisible bonds that form when two beings trust one another. It is about the closeness that can exist within distance, and the connections that hold us together without tying us down.

———

Snædís Björt Guðmundsdóttir (2001) graduated from the fine art painting programme at the Reykjavík School of Visual Arts in 2026.

Snædís works with oil painting, with animals, nature, and emotional connections at the centre of her practice. Her subjects are often horses and other animals, and in her work she seeks to capture their presence, personality, and the quiet dialogue that can form between human, animal, and environment.

Icelandic nature, its colours, and light are an important part of her visual world. Her works are characterised by warmth, a strong sense of colour, and sensitive observation, with an emphasis on connection and mindfulness.

Alongside her own artistic practice, she takes on custom commissions, including paintings of pets, horses, and landscapes. She also offers prints of selected works.

There will be a special exhibition opening on Thursday, August 6th from 18:00-21:00 and you are welcome!

Curator: Elvar Gunnarsson

Other opening hours

Fri 7th July 13:00 – 18:00
Sat 8th July 12:00 – 17:00
Sun 9th July 14:00 – 17:00

LG // Litla Gallerý is sponsored by the Culture and Tourism Committee of Hafnarfjörður for this event.

Ábendingagátt