Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Hér er að finna upplýsingar um úrræði fyrir börn og fjölskyldur á vegum Hafnarfjarðarbæjar
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Föstudaginn 3. febrúar verður haldið upp á Safnanótt í Hafnarborg og því munu dyr safnsins verða opnar fram á kvöld, auk þess sem boðið verður upp á ýmsa viðburði, svo sem tónleika, jógastund, leiðsögn og fleira. Hér fyrir neðan má finna nánari upplýsingar um dagskrá Hafnarborgar á Safnanótt.
„Ekkert hverfur alveg. Allt breytist einhvern tímann en kemur aftur í öðru formi.“
Í tilefni Safnanætur verður verki eftir myndlistarkonuna Þórdísi Erlu Zoëga varpað á gafl Hafnarborgar, sem og innri vegg safnsins, svo vegfarendur, gestir safnsins og fólk í nágrenni þess fái notið þessa tímabundna listaverks. Þórdís lauk námi við Gerrit Rietveld Academie í Amsterdam árið 2012 og hefur verið virk í sýningarhaldi bæði innanlands og á alþjóðlegum vettvangi. Í listsköpun sinni vinnur Þórdís með tengsl okkar við hinn stafræna heim, stefnur og rútínur í margvíslegum miðlum.
Tríó Sunnu Gunnlaugs, píanóleikara, kemur fram á fyrstu tónleikum Síðdegistóna í Hafnarborg árið 2023. Tríóið skipa auk Sunnu þeir Þorgrímur Jónsson á kontrabassa og Scott McLemore á trommur en saman munu þau leika valin lög af plötum sínum í bland við nýtt efni. Tríóið hefur á undanförnum árum komið fram víða hérlendis og erlendis þar sem þau hafa vakið athygli fyrir einstaka blöndu hins ljóðræna evrópska tónheims og amerísku djasshefðarinnar.
Blanda af skemmtilegum styrktar- og jafnvægisstöðum og ýmsum teygjum við góða föstudags-jógatónlist. Í lokin verður síðan slökun við mjúka og notalega tóna. Tíminn er byggður á Hatha Vinyasa og verður áhersla lögð á andlega og líkamlega vellíðan. Tilvalið að koma og eiga saman góða stund og fara endurnærð inn í helgina. Jógastundina leiðir Anna Rós Lárusdóttir í aðalsal Hafnarborgar, innan um skúlptúra listakonunnar Sóleyjar Eiríksdóttur sem bera titla eins og Æfing, Staða, Kollhnís o.s.frv.
Boðið verður upp á leiðsögn um yfirstandandi sýningar safnsins ásamt Aldísi Arnardóttur, forstöðumanni Hafnarborgar. Þá mun hún leiða gesti um sýningarnar Glettu, þar sem sjá má verk sem spanna feril Sóleyjar Eiríksdóttur (1957-1994), og Án titils, þar sem sýnd eru fágæt verk eftir Eirík Smith (1925-2016). Þess má geta að þetta er í fyrsta skipti sem sýningar á verkum þeirra feðgina eru haldnar undir sama þaki á sama tíma.
Á Safnanótt býðst gestum Vetrarhátíðar að heimsækja um fimmtíu söfn og skoða fjölbreyttar sýningar á höfuðborgarsvæðinu, jafnframt því sem söfnin bjóða upp á lifandi og skemmtilega dagskrá. Menningarstofnanir Hafnarfjarðar, Bókasafnið, Byggðasafnið og Hafnarborg, taka þátt eins og áður en Safnanótt var síðast haldin árið 2020. Frítt er inn á öll söfnin í tilefni kvöldsins.