Styrmir Örn Guðmundsson: Hugrenningar – listamanns- og sýningarstjóraspjall
Sunnudaginn 22. nóvember kl. 14 munu Styrmir Örn Guðmundsson og Heiðar Kári Rannversson, sýningarstjóri, leiða gesti um nýopnaða sýningu listamannsins,…
Föstudaginn 27. febrúar kl. 18 mun söngkonan Kristjana Stefánsdóttir koma fram á fyrstu Síðdegistónum ársins 2026 í Hafnarborg ásamt þeim Birgi Steini Theódórssyni á bassa og Andrési Þór á gítar. Á efniskránni verða ýmsir djasshúsgangar úr ýmsum áttum.
Kristjana Stefánsdóttir hefur verið leiðandi tónlistarkona á íslenskri djasstónlistarsenu um árabil og verðlaunað tónskáld fyrir leiksýningar og söngleiki. Hún hefur hljóðritað bæði í eigin nafni og kemur reglulega fram í útvarpi, sjónvarpi og á tónleikum, bæði hérlendis og erlendis. Kristjana starfar reglulega með öðru tónlistarfólki, svo sem Stórsveit Reykjavíkur og Jazzkonum, auk þess að starfa með sínum eigin böndum.
Tónleikarnir standa í um klukkustund og er aðgangur ókeypis.
Tónleikaröðin er styrkt af Hafnarfjarðarbæ og Menningarsjóði FÍH.